Körfubolti

Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frá­bæra frammi­stöðu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var með 18 stig og 13 fráköst í úrslitaleiknum.
Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var með 18 stig og 13 fráköst í úrslitaleiknum. FIBA Basketball

Íslenska sextán ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið í B-deild Evrópukeppninnar í ár eftir naumt 69-67 tap í úrslitaleik á móti gríðarlega sterkum Króötum.

Íslenska liðið hafði unnið alla leiki sína í keppninni nema fyrri leikinn á móti Króötum sem tapaðist með 27 stigum í riðlakeppninni.

Íslensku strákarnir sýndu mun betri leik í kvöld og úr varð svakalegur leikur á milli tveggja öflugra liða. Íslenska liðið var yfir þegar fimm sekúndur voru eftir af leiknum en Króatarnir settu niður þrist í blálokin og tryggðu sér gullið.

Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var atkvæðamestur með 18 stig, 13 fráköst og 3 stoðsendingar en Keflvíkingurinn Davíð Breki Antonsson bætti við 13 stigum og 5 stoðsendingum.

Sindramaðurinn Hlynur Ingi Finnsson skoraði 11 stig og Stjörnustrákurinn Jón Breki Sigurðarson var með 10 stig og 9 fráköst.

Stjörnumennirnir Baltasar Torfi Hlynsson og Kormákur Nói Jack voru síðan með sex stig hvor en Kormákur tók einnig átta fráköst.

FIBA Basketball

Króatar byrjuðu betur og voru fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 17-12, en íslensku strákarnir ætluðu ekki að láta hlaupa yfir sig eins og í fyrri leiknum.

Íslenska liðið komst meðal annars yfir í lok fyrri hálfleiks en Króatar leiddu með tveimur stigum í hálfleik, 40-38.

Strákarnir voru líka einu stigi yfir, 55-54, fyrir lokaleikhlutann eftir þriggja stiga körfu frá Davíð Breka.

Lokaleikhlutinn var æsispennandi og 93 sekúndum fyrir leikslok setti Atli Freyr niður þrist og kom Íslandi yfir í 67-66.

Króatar náðu að skora sigurkörfuna á lokasekúndunum og lokaskot íslensku strákanna geigaði.

Svekkjandi tap sem stórkostleg frammistaða á móti liði sem hafði unnið alla leiki sína á mótinu mjög stórt.

Það mikilvægasta er að íslensku strákarnir tryggðu Íslandi sæti í A-deild Evrópukeppninnar á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×