Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Áróra L Davíðsdóttir skrifar 12. ágúst 2026 16:17 DARA vann Eurovision í fyrra með laginu Bangaranga fyrir hönd Búlgaríu. Getty/Christian Bruna Nýjar reglur munu vera í gildi í Eurovision-keppninni á næsta ári sem haldin verður í Búlgaríu. Þær kveða meðal annars á um að flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu.
Stjórn Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hefur sett nýjar reglur um framkvæmd Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, en þær taka gildi fyrir keppnina 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. Nýju reglurnar kveða meðal annars á um að keppendur þurfi að vera eldri en 18 ára þegar fyrstu æfingar fyrir keppnina hefjast, en fyrir var aldurstakmarkið 16 ár. Ástæða breytingarinnar sé til þess fallin að vernda unga flytjendur og draga úr þeim þrýstingi sem fylgi því að taka þátt í keppninni. Ekki megi halda keppnina þar sem vopnuð átök fari fram Einnig hafa verið gerðar breytingar á reglum varðandi gestgjafaþjóðina. Sú þjóð sem vinnur Eurovision gæti misst réttinn á að halda keppnina í landinu ef vopnuð átök standa yfir í landinu sem og vegna annarra þátta sem gætu ógnað öryggi. Stjórn EBU geti í þeim aðstæðum framkvæmt öryggismat og falið annarri þjóð að halda keppnina. Ef sigurþjóðin er talin ófær til þess að halda keppnina verður annar gestgjafi fundinn til þess að halda keppnina. Í reglum Eurovision segir: „Þar sem vopnuð átök, viðkvæm landfræðileg staða eða aðrar ástæður hafa veruleg áhrif á öryggi, vernd eða stöðugleika á landinu eða nærliggjandi svæði þátttökusjónvarpsstöðvar, skal sú þátttökusjónvarpsstöð ekki vera gjaldgeng til að halda næstu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ef framlag hennar sigrar.“ „Í þessu samhengi merkir „nærliggjandi svæði“ land viðkomandi sjónvarpsstöðvar og/eða nágrannasvæði þar sem staðan hefur bein og mikil áhrif á öryggi þess (til dæmis hernaðaraðgerðir, árásir eða takmörkun á lofthelgi sem hafa áhrif á örugga skipulagningu Eurovision).“ Sigurþjóð keppninnar heldur öllu að jafna keppnina að ári liðnu, þó eru til undantekningar frá þessari hefð. Til að mynda vann Úkraína keppnina árið 2022 en vegna átaka þar í landi var Úkraína ekki talin hæf til þess að halda keppnina. Því var keppnin árið 2023 haldin í Bretlandi, en framlag þess lenti í öðru sæti árið 2022. Aðalsöngvari verði að flytja lagið í beinni Auk þess verði teknar upp nýjar reglur um hljóð hvað varðar notkun fyrirfram upptekins efnis í keppninni. Nýjar reglur kveða á um að aðalsöngvari verði að flytja lagið í beinni útsendingu. Bakraddir og annað undirspil megi vera tekið upp fyrir fram en megi ekki koma í stað lifandi flutnings. Þetta sé gert til þess að tryggja heillindi hvers flutnings og tryggja það að áhorfendur heyri sönginn í hverju lagi sem flutt er í beinni útsendingu.
Eurovision Eurovision 2027 Búlgaría Tónlist Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“