Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar 12. ágúst 2026 11:00 Þeir sem hafa starfað í sveitarstjórnum þekkja af eigin raun hve seinlegt og snúið það getur verið að hrinda mikilvægum verkefnum í framkvæmd. Sama hvort um er að ræða samgöngur, hafnarmannvirki, heilbrigðisþjónustu eða orkumál, þá er samstarf við ríkið, stofnanir þess og flókið regluverk óumflýjanlegur hluti af ferlinu. Reynslan sýnir að afgreiðsla mála hjá ríkinu og undirstofnunum þess, hvort sem það snýst um ákvarðanatöku, leyfisveitingar eða framkvæmd, tekur oft á tíðum drjúgan tíma. Í ljósi þess er eðlilegt að spyrja hvort skynsamlegt sé að bæta við enn einu stjórnsýslustigi, sem myndi óhjákvæmilega hafa áhrif á gang mál. Ákvarðanir teknar annars staðar Gengi Ísland í Evrópusambandið myndi það þýða að ákvarðanir sem varða landið yrðu í síauknum mæli teknar eða a.m.k. mótaðar utan landsteinanna. Þetta á ekki síst við um málaflokka sem skipta sveitarfélög og íbúa þeirra hvað mestu máli, líkt og orkumál og nýtingu sjávarauðlinda og annarra náttúruauðlinda. Lítil dæmi sem munu sjást á stærri skala Nú þegar reyna smærri sveitarfélög á eigin skinni hvernig það er að búa við ákvarðanir sem teknar eru annars staðar á landinu, oft í stærri byggðarlögum. Heilbrigðisþjónustan er ágætt dæmi um þetta. Höfuðstöðvar heilbrigðisstofnana hvers landsfjórðungs eru staðsettar á einum stað, og þar eru teknar ákvarðanir sem varða minni byggðarlög, ákvarðanir sem taka ekki alltaf fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað. Ég er ekki að gagnrýna þá sem taka þessar ákvarðanir; einhver þarf jú að gera það, en á meðan við búum enn í nálægð hvert við annað getum við veitt gagnkvæmt aðhald. Samstarf án þess að færa ákvörðunarvald Alþjóðlegt samstarf skiptir vissulega miklu máli og Ísland á að rækta góð tengsl við nágrannaþjóðir sínar og taka virkan þátt í alþjóðasamfélaginu. Standi samningsstaða okkar vel að vígi tel ég að áherslan eigi að vera á að ná sem hagstæðustum milliríkjasamningum, á okkar eigin forsendum. Það er annað en að framselja ákvörðunarvaldið. Þegar upp er staðið snýst þetta um fjarlægðina milli þeirra sem taka ákvarðanirnar og þeirra sem búa við afleiðingar þeirra. Þeir sem stýra sveitarfélögunum finna nú þegar fyrir því hvernig ákvarðanir sem teknar eru fjarri þeim, taka síður mið af raunverulegum aðstæðum á hverjum stað. Ef við færum ákvörðunarvald enn lengra frá okkur, alla leið til Brussel, er hætt við að þessi fjarlægð myndi aukast enn frekar og með henni sú tilfinning íbúa og sveitarstjórna að hafa sífellt minni áhrif á eigin málefni. Þess í stað ættum við að leggja áherslu á virkt og gagnkvæmt samstarf sem heldur ákvörðunum sem næst þeim sem þær varða. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gísli Stefánsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar