Körfubolti

Komust í 8-liða úr­slit þrátt fyrir tap

Andri Broddason skrifar
Íslenska liðið komst í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap gegn Króatíu í lokaleik riðilsins.
Íslenska liðið komst í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap gegn Króatíu í lokaleik riðilsins. FIBA

Íslenska U16 landslið karla í körfubolta er komið í 8-liða úrslit B-deildar Evrópumóts U16. Liðið endaði í öðru sæti síns riðils eftir að hafa tapað gegn Króatíu í dag.

Íslenska U16 liðið mætti Króatíu í dag í lokaleik B-deildar EM U16 í körfubolta. Króatía var sterkari aðilinn og vann 27 stiga sigur 80-53. Þetta var eini tapleikur íslenska liðsins í riðlinum og er Ísland komið áfram í 8-liða úrslit þrátt fyrir tapið.

Króatía endar á toppi riðilsins taplaust en tvö lið fara upp úr riðlinum. Ísland mætir liðinu sem endar í fyrsta sæti A-riðils í 8-liða úrslitum. Eins og staðan er núna mætir liðið Hollandi en lokaumferð A-riðils klárast í kvöld.

Kormákur Jack var afkastamesti leikmaður íslenska liðsins en hann skoraði átján stig auk þess að taka átta fráköst. Jón Breki Sigurðarson og Davíð Antonsson voru næststigahæstir með átta stig hvor.

Íslenska liðið mun keppa í 8-liða úrslitum og má búast við hörkuleik sama hvaða liði Ísland mætir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×