Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar 11. ágúst 2026 12:01 Félag lesblindra á Íslandi hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á að kynna helstu tæknibreytingar og hjálpartæki sem geta nýst lesblindum. Þetta birtist oft í snjöllum hugbúnaði og vélbúnaði sem brúar bilið á milli texta og skilnings. Félag lesblindra hefur lagt áherslu á að þessi tækni breytt vinnu- og námsumhverfi lesblindra til mikilla muna. Á skrifstofu félagsins geta félagsmenn fengið aðstoð og leiðbeiningar um hvaða lausnir bjóðast á sviði hugbúnaðar og snjallforrita. Við finnum að lesblindir binda miklar vonir við tæknilausnir sem geta aðstoðað í heimi textans. Engum blöðum er um það að fletta að gervigreind og ný máltækni geta aðstoðað lesblinda með mjög fjölbreyttum og áhrifaríkum hætti. Það er áskorun fyrir einstaklinga, stofnanir og félagasamtök að nýta þessa nýju tækni en tæknin brúar bilið á milli ritaðs máls og skilnings, sem auðveldar fólki með lesblindu bæði nám, atvinnu og daglegt líf. Ef við skoðum leiðirnar þar sem gervigreind nýtist lesblindum stoppum við strax við raddstýringu og hlustun eða talgervingu (Text-to-Speech). Þar les gervigreind texta upphátt með náttúrulegum og blæbrigðaríkum röddum. Nemendur geta hlustað á námsefni í stað þess að lesa það. Raddstýrðir gervigreindarkennarar Þá getur gervigreind nýst við einföldun og úrvinnslu texta og við samantektir og einföldun. Skapandi gervigreind eins og ChatGPT getur tekið flókinn, langan texta og umbreytt honum í einfaldara mál eða punktaform. Þetta minnkar lestrarálag. Þá er aðlögun leturs og útlits mikilvæg. Sérhæfð gervigreindartól geta breytt leturgerð, línubili og bakgrunnslitum sjálfkrafa til að gera texta læsilegri fyrir þá sem eru með lesblindu. Þegar kemur að ritun og leiðréttingum skiptir talgreining miklu (Speech-to-Text). Lesblindir geta rætt við tækin sín og gervigreindin breytir talinu í rétt skrifaðan texta. Þetta auðveldar ritgerðasmíð og tölvupóstasendingar. Ólíkt eldri villuleitarforritum skilur ný gervigreind samhengi setninga. Hún getur leiðrétt flóknar stafsetningarvillur og málfræði á rauntíma án þess að notandinn þurfi að fletta orðum upp. Allt eru þetta tæki og tól sem lesblindir ættu að nýta sér. Síðast en ekki síst eru það stafræn námsgögn, svo sem hljóðbækur og rafbækur, sem gera lesblindum kleift að fylgja texta með augunum á meðan hljóðupptaka spilast, sem eykur bæði leshraða og lesskilning. En þá bregður svo við að skólakerfið byggir enn að stórum hluta á nítjándualdartækni, textanum. Það byggir á bóknámi þar sem náminu er miðlað með bókum. Þetta verður til þess að bókin er í raun og veru enn þá þungamiðja kennslu og miðlunar upplýsinga í skólakerfinu. Það er lesblindum vonbrigði hve tregt skólakerfið er að nýta sér tæknina. Höfundur er formaður Félags lesblindra á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur S. Johnsen Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar