Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Kjartan Kjartansson skrifar 11. ágúst 2026 07:46 Duane Davis stýrði glæpagengi í Compton í Los Angeles þegar Tupac Shakur var myrtur. Hann var í bílnum sem skotum var hleypt af á bíl Tupac í Las Vegas. Davis er ákærður fyrir að skipa fyrir um morðið. Hann neitar sök. AP/David Becker Réttarhöld yfir fyrrverandi glæpaforingja sem er ákærður fyrir að skipa fyrir um morðið á rapparanum Tupac Shakur fyrir tæpum þrjátíu árum hófust í Las Vegas í gær.
Morðið á Tupac Shakur skók tónlistarheiminn en hann var einn vinsælasti tónlistarmaður heims þegar hann var skotinn til bana á götum Las Vegas 7. september árið 1996. Hann var aðeins 25 ára gamall. Hvítum Kadilják var ekið upp að hlið BMW-bifreiðar sem Tupac var farþegi í þar sem hún var stopp á rauðu ljósi. Óþekktur maður í Kadiljáknum hóf síðan skothríð og skaut Tupac nokkrum skotum. Lögreglu tókst aldrei að hafa hendur í hári banamanna rapparans. Duane „Keffe D“ Davis, sem þá var leiðtogi glæpagengisins South Side Compton Crips í Los Angeles, svarar nú til saka fyrir morðið. Honum er gefið að sök að hafa fyrirskipað morðið á Tupac. Davis bendlaði sig sjálfur við morðið í endurminningabók sem hann gaf út árið 2019. Þar sagðist hann hafa útvegað byssuna sem Tupac var skotinn með og kastað henni í aftursæti Kadiljáksins en sagði ekki hver hefði tekið í gikkinn. Davis var handtekinn árið 2023. AP-fréttastofan segir að almennt sé talið að frændi Davis hafi skotið Tupac en hann var aldrei sóttur til saka. Sá lést í skotbardaga í Compton-hverfinu í Los Angeles tveimur árum eftir morðið. Diddy ekki á vitnalistanum Aðeins einn maður sem var í bílunum tveimur þegar Tupac var myrtur, annar en Davis, er enn á lífi. Tónlistarframleiðandinn Marion „Suge“ Knight var í föruneyti Tupacs en hann hefur þegar sagt að hann ætli ekki að bera vitni í málinu. Knight afplánar nú langan fangelsisdóm sem hann hlaut fyrir að verða manni að bana í Compton árið 2015. Pískrað hefur verið um að Sean „Diddy“ Combs gæti verið kallaður til vitnis. Davis hélt því fram í bók sinni að Combs vildi Tupac og Knight feiga og hefði boðið sér fé til þess að koma þeim fyrir kattarnef. Combs hefur alla tíð neitað því að tengjast morðinu á nokkurn hátt. Hann dúsir nú sjálfur í fangelsi í New Jersey vegna mansals. AP segir hann hvorki á vitnalista ákæruvaldsins né verjenda Davis. Réttarhöldin yfir Davis hófust með vali á kviðdómi í gær. Reiknað er með að það val gæti tekið þorra vikunnar.
Bandaríkin Erlend sakamál Skotárásir í Bandaríkjunum Tónlist Tengdar fréttir Húsleit vegna morðsins á Tupac Shakur Lögreglan í Las Vegas fór fram á og fékk leitarheimild vegna rannsóknar á morðinu á rapparanum Tupac Shakur. 26 ár eru síðan rapparinn var myrtur þann 7. september árið 1996 í Las Vegas og hefur morðinginn aldrei fundist. 18. júlí 2023 23:28 Frægustu rapperjur sögunnar Í gegnum tíðina hafa rapparar oft verið í opinberum erjum við aðra rappara og hefur það stundum endað skelfilega. 25. apríl 2016 10:21 „Suge“ Knight ákærður fyrir morð Knight er gert að hafa ekið yfir fyrrum vin sinn og annan mann eftir rifrildi á fimmtudaginn. 3. febrúar 2015 15:27 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira
Húsleit vegna morðsins á Tupac Shakur Lögreglan í Las Vegas fór fram á og fékk leitarheimild vegna rannsóknar á morðinu á rapparanum Tupac Shakur. 26 ár eru síðan rapparinn var myrtur þann 7. september árið 1996 í Las Vegas og hefur morðinginn aldrei fundist. 18. júlí 2023 23:28
Frægustu rapperjur sögunnar Í gegnum tíðina hafa rapparar oft verið í opinberum erjum við aðra rappara og hefur það stundum endað skelfilega. 25. apríl 2016 10:21
„Suge“ Knight ákærður fyrir morð Knight er gert að hafa ekið yfir fyrrum vin sinn og annan mann eftir rifrildi á fimmtudaginn. 3. febrúar 2015 15:27