Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar 7. ágúst 2026 15:30 Hinsegin dagar eru dagarnir okkar, ekki bara hinsegin fólks heldur okkar allra. Hinsegin dagar minna okkur nefnilega á að með samstöðu gerist svo ótal margt. Þá náum við árangri og ýtum úr vör mikilvægum breytingum í þágu mannréttinda okkar allra. Þetta er nefnilega uppskeruhátíð, að vissu leyti, þar sem við eigum að fagna saman því sem við höfum áorkað, en ekki síður brýna okkur og skerpa sýnina til framtíðar. Lög um kynrænt sjálfræði voru eitt stærsta skref sem tekið hefur verið á Íslandi í þágu mannréttinda hinsegin fólks, og þá helst trans fólks og intersex fólks. Sjálfsákvörðunarréttur um skráningu eigin kyns, möguleikinn á skráningu hlutlauss kyns og ekki síst sú líkamlega friðhelgi sem lögin hafa í för með sér eru allt stórir áfangar í sögu hinsegin fólks á Íslandi. Setning laganna byggðist þó einnig á þeirri viðurkenningu að þróun þessara réttinda væri í sífelldri endurskoðun og að lögin yrðu ávallt að endurspegla nýjustu rannsóknir og þá vitneskju sem við höfum, okkur öllum til góða. Endurskoðun þarf að fara fram Samkvæmt lögunum átti að skipa starfshóp innan þriggja ára frá gildistöku ákvæðanna um ódæmigerð kyneinkenni, sem sett voru nokkru síðar. Hópurinn átti einmitt að skoða nýjustu rannsóknir, þær framfarir sem orðið hafa og þá miklu vitneskju sem okkur hefur áskotnast síðustu ár, til að tryggja sem allra bestu þjónustu, samfélaginu öllu til heilla. Sá frestur rann út í desember 2023. Nú eru liðin meira en tvö og hálft ár frá því að starfshópurinn hefði átt að taka til starfa. Intersex fólk hefur í gegnum tíðina byggt baráttu sína á krafti og þrautseigju, en í raun er lykilorðið þolinmæði. Þolinmæði eftir aðstoð, þjónustu, skilningi, „æðruleysi“, réttlæti, samstöðu, nefndum, ráðum, þingum, fólki, fjölskyldu og svo mætti lengi telja. En það er ekki endalaust hægt að reiða sig á þolinmæði intersex fólks. Lögin ná ekki til allra Sérstök áhyggjuefni eru undantekningar í lögunum vegna tiltekinna kyneinkenna. Nýjar rannsóknir undirstrika mikilvægi þess að fara varlega. Skýr vilji intersex fólks er þó sá að ónauðsynlegar aðgerðir á börnum, og auðvitað fólki almennt, séu bannaðar og að annað sé undantekning, byggð á ákvörðunum fagfólks sem hefur fræðslu og nýjustu rannsóknir að leiðarljósi. Rannsóknir á aðgerðum sem falla ekki sjálfkrafa undir vernd laga um kynrænt sjálfræði sýna til dæmis að veruleg hætta er á að börn þurfi fleiri og ófyrirséðar aðgerðir síðar. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hvatti Ísland árið 2022 til að tryggja að ónauðsynlegri læknis- og skurðmeðferð væri frestað þar til börn gætu sjálf veitt upplýst samþykki. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna gekk lengra árið 2024 og kallaði eftir því að undantekningar í íslenskum lögum yrðu endurskoðaðar. Evrópuráðið hefur síðan samþykkt ítarleg tilmæli um réttindi intersex fólks. Gagnsæi og eftirlit eru lykilatriði Framkvæmd laganna vekur einnig spurningar. Teymið sem fjallar um börn með ódæmigerð kyneinkenni á, samkvæmt lögskýringargögnum, að vera þverfaglegt. Núverandi teymi er þó eingöngu skipað læknum, einkum sérfræðingum í innkirtla-, skurð- og þvagfæralækningum barna. Sálfræðingar, félagsráðgjafar, siðfræðingar og fulltrúar með þekkingu á mannréttindum intersex fólks eru ekki fastir meðlimir. Eftirlitið er einnig óskýrt. Sérfræðinefndin sem á, meðal annars, að veita teyminu aðhald er að hluta skipuð einstaklingum sem jafnframt starfa innan þess kerfis sem nefndinni er ætlað að hafa eftirlit með. Slíkt fyrirkomulag skapar hættu á árekstrum og veikir traust. Við þurfum einnig nánari upplýsingar um fjölda og eðli aðgerða sem og meðferða sem breyta kyneinkennum barna varanlega. Án gagnsæis er erfitt að meta hvort lögin veiti þá vernd sem þeim var ætlað að tryggja. Intersex Ísland hefur á liðnu ári verið í góðu og mikilvægu sambandi og samtali við stofnanir og ráðuneyti varðandi þessi mál, og við munum að sjálfsögðu halda því áfram. Við erum þakklát og það er engin manneskja ein Ég vil einnig nýta tækifærið og þakka stjórn og starfsfólki Hinsegin daga í Reykjavík fyrir sitt ómetanlega framlag, fyrir ykkur erum við öll svo þakklát að erfitt er að setja það þakklæti í orð. Takk. Hinsegin dagar eru dagar sýnileika og við eigum öll innan fjölskyldunnar að vera stolt af því sem við erum og gleðjast. En við eigum ekki síður að muna hvað enn þarf að gera og allra mikilvægast er að vita að við eigum alltaf skjól, við eigum alltaf einhvern að leita til og engin manneskja er ein. Við erum hér. Gleðilega hinsegin daga. Höfundur er Framkvæmdastjóri Intersex Ísland, intersex.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Reykjavík Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar