Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2026 19:30 Jeremy Monga með boltann í sigri Manchester City á úrvalsliði K-deildarinnar í Suður-Kóreu. EPA/JEON HEON-KYUN Manchester City hafði betur í baráttunni við Englandsmeistara Arsenal í sumar en bæði voru að eltast við hinn unga og efnilega knattspyrnumann Jeremy Monga.
Þessi sautján ára gamli kantmaður yfirgaf Leicester, sem leikur í ensku C-deildinni, og gekk til liðs við City í sumar fyrir kaupverð sem talið er vera tíu milljónir punda auk 2,5 milljóna punda í mögulegum viðbótargreiðslum. Monga, sem er þriðji yngsti leikmaðurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni, skrifaði undir samning til ársins 2031 við City eftir að hafa hafnað tilboði frá Englandsmeisturum Arsenal. Jeremy Monga: "It [Arsenal interest] was very strong. It was very close to me going there, very close.“The main decision was probably the pathway and club itself. They've been so successful that it was a no-brainer when #ManCity call. It's every child's dream to win trophies…— City Xtra (@City_Xtra) August 5, 2026 „Áhugi Arsenal var mjög mikill því það var mjög nálægt því að ég færi þangað, mjög nálægt,“ sagði hann við breska ríkisútvarpið. „Aðalástæðan fyrir ákvörðuninni var líklega framtíðarferillinn og félagið sjálft. Þeir hafa verið svo sigursælir að það var augljós ákvörðun að segja já þegar City hringir. Það er draumur hvers barns að vinna titla og vera á toppnum með þeim bestu,“ sagði Monga. Manchester City hefur ekki unnið Englandsmeistaratitilinn í tvö tímabil en vann hann sex sinnum á sjö árum þar á undan. Arsenal er ríkjandi meistari. „Þegar ég fæ tækifærið þarf ég bara að sýna hvað í mér býr og þegar ég geri það mun allt annað sjá um sig sjálft. Mér finnst ég persónulega sjá mig frekar hjá City. Ég sé mig í bláu,“ sagði Monga. Monga lék sinn fyrsta leik fyrir City sem varamaður í 3-1 sigri á miðvikudaginn gegn úrvalsliði K-deildarinnar í steikjandi hita í Seúl í Suður-Kóreu. Kim Dae-won jafnaði eftir að Rayan Ait-Nouri hafði komið City yfir, áður en Tijjani Reijnders og Divin Mubama skoruðu fyrir City og tryggðu liðinu sigur á heimsmeistaramótsvellinum í Seúl.
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjá meira