EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar 5. ágúst 2026 16:30 Nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB hefur margt verið skrafað og skrifað. Það hefur einkum vakið athygli að oft er nokkuð frjálslega farið með grundvallarmarkmið og eðli EES samningsins. Þetta er miður, því að komandi þjóðaratkvæðagreiðsla ætti einkum að kalla á að kjósendur meti hvort þeir telji farsælt að Ísland sé þátttakandi á innri markaði ESB, hinu evrópska efnahagssvæði, og ef svo er, hvort þeir hafi fullvissu um að EES samningurinn dugi um ókomna tíð eða hvort kanna beri hvort full aðild að ESB gæti verið betri kostur. Grundvallarmarkmið EES samningsins er að skapa einsleitt evrópskt efnahagssvæði þar sem sömu reglur gilda fyrir alla. Þess vegna felst í samningnum að EFTA ríkin sem að honum eiga aðild skuldbinda sig til að taka upp alla löggjöf ESB sem varðar innri markaðinn. Hér er ekki bara átt við hið svonefnda fjórfrelsi heldur fjölmörg svið sem tengjast framkvæmd þess; neytendaréttur, félagaréttur, vinnuréttur, umhverfisréttur, orkumál, fjarskiptaþjónusta, fjármálaþjónusta, tæknilegar kröfur og staðlar, plöntu- og dýraheilbrigði, svo eitthvað sé nefnt. Þegar löggjöf sem varðar innri markaðinn er samþykkt af stofnunum ESB, þinginu og ráðherraráðinu, er því skylda samkvæmt EES samningnum að taka hana upp í samninginn með þar til gerðum hætti. Það er því ekki þannig að EFTA ríkin velji og hafni að vild hvaða löggjöf þeim hugnist að bæta í sarpinn og hvað ekki. Einsleitt efnahagssvæði verður ekki búið til nema að sömu reglur gildi á öllu svæðinu. Að auki gerir samningurinn ráð fyrir að EFTA ríkin tali einni röddu, þ.e. að EFTA ríkin komi sér saman um hvort óska eigi eftir einhverjum breytingum á þessari löggjöf. Það kann að fela í sér samningarviðræður og málamiðlanir á milli þeirra þriggja. Þá gerir samningurinn ráð fyrir einróma samþykki samningsaðila, þannig að EFTA ríkin og ESB verða að ná samkomulagi um upptöku löggjafar og eftir atvikum breytingar eða aðlaganir á henni. Þegar löggjöfin hefur verið tekin upp í EES samninginn með ákvörðun Sameiginlegu EES nefndarinnar felur samningurinn í sér skyldu EFTA ríkjanna til að innleiða hana í landsrétt. Láti EFTA ríkin hjá líða að sinna þessari skyldu er það Eftirlitsstofnunar EFTA að krefjast umbóta og eftir atvikum höfða samningsbrotamál fyrir EFTA dómstólnum. Komist EFTA dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að EFTA ríki hafi brotið gegn samningsskyldum sínum felst það í samningsskyldum viðkomandi EFTA ríkis að það er bundið af niðurstöðu EFTA dómstólsins þar að lútandi. Virði viðkomandi EFTA ríki hins vegar niðurstöðu EFTA dómstólsins að vettugi geta aðrir samningsaðilar gripið til ráðstafanna s.s. takmörkun á gildissviði samningsins. Til dæmis gæti þannig komið til skoðunar að takmarka að einhverju leyti aðgang að innri markaðnum fyrir vörur frá EFTA ríki sem uppfyllir ekki skyldur EES samningsins um vöruviðskipti. Það gæti þannig haft verulegar afleiðingar fyrir samningsaðila að virða skuldbindingar samkvæmt EES samningnum að vettugi, sem sést best á því að ekkert EFTA ríkjanna hefur látið á það reyna í framkvæmd. Eftirfylgni samningsins tryggir hins vegar, eins og áður segir, aðgengi Íslands að innri markaðnum og margs konar samstarfi sem honum tengist. Svo virðist vera sem almennt ríki mikil ánægja um þessa þátttöku í innri markaðnum hér á landi, möguleiki til að eiga frjáls viðskipti með vörur og þjónustu, stofna fyrirtæki, fjárfesta, búa, starfa og stunda nám að vild, eru þannig í hugum flestra gæði sem ber að standa vörð um. Þannig virðast ekki margir leggja til, að minnsta kosti ekki berum orðum, að rétt sé að íhuga uppsögn EES samningsins. Þessi aðgangur að innri markaðnum og samstarf við aðildarríki ESB í ríflega þrjá áratugi gerir það hins vegar að verkum að staða Íslands við upphaf aðildarviðræðna er verulega frábrugðin öllum þeim þjóðum sem sótt hafa um aðild að sambandinu til þessa. Engin þeirra var þegar fullur þátttakandi á innri markaðnum þegar sótt var um aðild. Þetta þýðir t.d. að í aðildarviðræðum þarf ekki að fjalla um eða taka afstöðu til aðlögunar að reglum innri markaðsins – hún er raungerð í hvert sinn sem sameiginlega EES nefndin kemur saman til að taka upp nýja ESB löggjöf í EES samninginn. Ef menn telja að þessi aðgangur að innri markaðnum sé án efa farsæll fyrir Ísland, þá snúast aðildarviðræður í grunninn um að glöggva sig á því hvernig dæmið myndi líta út ef Ísland hefði fulla aðild að ESB, að viðbættum þeim sviðum sem falla utan gildissvið EES samningsins í dag. Þetta eru einkum sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, öryggis- og varnarmál, tollabandalag og sameiginleg viðskiptastefna. Aðildarviðræður munu snúast um hvort og hvernig aðildarríki ESB eru tilbúin til að koma til móts við sérþarfir Íslands ef við á, hvort heldur byggt sé á landfræðilegum eða lýðfræðilegum sjónarmiðum, til sjávar eða til sveita. Aðild að EES samningnum hefur bæði kosti og galla, líkt og aðild að ESB. Að mörgu leyti er EES samningurinn barn síns tíma, hann tryggir ekki aðkomu að mótun og samþykkt löggjafar og felur í sér tímafrekt upptökuferli og stofnanakerfi sem ekki var hannað fyrir áskoranir 21. aldarinnar svo eitthvað sé nefnt. Hins vegar veitir hann eins og áður segir rétt til þátttöku á innri markaðnum. Aðild að ESB felur í sér að reglugerðir ESB öðlast lagagildi þegar þær hefur verið samþykktar af þinginu og ráðherraráðinu í stað þess að þurfa að fara í gegnum sérstakt upptöku- og innleiðingarferli. Hins vegar felur aðildin líka í sér möguleika á því að koma að bæti mótun og samþykkt löggjafar sem Ísland er í dag skuldbundið til að innleiða samkvæmt EES samningnum. Þessa kosti og galla verður að sjálfsögðu að vega og meta. En til þess að það sé unnt til fulls verður heildarmyndin að liggja fyrir og hún fæst ekki nema að undangengnum aðildarviðræðum. Höfundur er lögmaður og fyrrum yfirlögfræðingur hjá EFTA Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Sif Tynes Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun