Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. ágúst 2026 15:48 Dorrit tjáði sig með tjáknum um tíðindin í morgun. Vísir/Vilhelm Ein stærsta frétt sumarsins birtist á Vísi í morgun þegar greint var frá því að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff væru að skilja. Hvorugt þeirra hefur tjáð sig formlega um fregnirnar en Dorrit brást hins vegar við tíðindunum með dularfullri athugasemd á samfélagsmiðlum.
Ólafur og Dorrit hafa verið gift í 23 ár en hafa ekki sést opinberlega saman hér á landi síðan í mars þegar þau mættu saman á útför Davíðs Oddssonar í Hallgrímskirkju. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skilnaðarferli þeirra verið í gangi undanfarna mánuði og farið að sjá fyrir endann á því. Dorrit hefur að mestu haldið heimili í London samhliða dvöl á Íslandi undanfarin ár en þó komið reglulega til Íslands og dvalið í Mosfellsbænum þangað sem þau hjónin fluttu þegar tuttugu ára forsetatíð Ólafs Ragnars á Bessastöðum lauk sumarið 2016. Dorrit svaraði skriflegri fyrirspurn fréttastofu um tímamótin á þann veg að þeim Ólafi liði báðum vel og þau væru góðir vinir. Ólafur Ragnar vildi ekkert tjá sig um þessi mál þegar Vísir hafði samband fyrr í sumar. Hvorugt þeirra hefur tjáð sig formlega um tíðindin en Dorrit skrifaði hins vegar athugasemd við Instagram-deilingu Morgunblaðsins af fréttunum. Orð voru óþörf því Dorrit lét nægja að skrifa sex dropatákn við færsluna, eða „💦💦💦💦💦💦“. Færsla Mbl sem Dorrit skrifaði athugasemd við. Samkvæmt tjáknalyklaborðinu þá táknar umrætt tjákn svitadropa og er gjarnan notað þegar fólk birtir færslur um líkamsrækt eða sundspretti. Einnig er það gjarnan notað þegar fólk er statt í miklum hita eða þá sem skrauthvörf um óviðeigandi háttalag. Líklegast má þó túlka notkun Dorritar á dropunum sem tár, sorg vegna tímamótanna. Þá birti Dorrit upp úr hádegi færslu á Instagram frá eyjunni Mykonos þar sem hún er stödd í eldhúsi og fylgist með manni elda vartara. „Ég eldaði þetta ekki en ég mun elda þann næsta,“ segir sumarleg Dorrit í myndbandinu og bætir síðan við: „Þetta er matreiðslumeistaraverk. Ykkur er öllum boðið þegar ég elda hann í næstu viku.“ Dorrit er stödd á eyjunni Mykonos við Grikklandsstrendur.
Ólafur Ragnar Grímsson Tímamót Samfélagsmiðlar Dorrit Moussaieff Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira