Real nálgast samkomulag um Diomandé Valur Páll Eiríksson skrifar 5. ágúst 2026 12:32 Það virðist tímaspursmál hvenær Diomande fari til Real Madrid. Jan Woitas/picture alliance via Getty Images Real Madrid er nálægt því að ná samkomulagi við RB Leipzig um kaup á Yan Diomandé eftir samningaviðræður sem hafa staðið yfir stóran hluta sumars.
Hinn 19 ára gamli Diomandé kom í æfingabúðir Leipzig sem fram fara í Austurríki í vikunni eftir að hafa áður setið eftir heima þegar liðsfélagar hans fluttu sig þangað yfir á laugardaginn var. Enn á eftir að fínpússa smáatriði í samningnum áður en landsliðsmaðurinn frá Fílabeinsströndinni fær leyfi til að ferðast til Madrídar til að gangast undir læknisskoðun. Greint var frá því í síðasta mánuði að Diomandé vonaðist eftir skiptum til Real í kjölfar þess að Paris Saint-Germain dró sig út úr viðræðum við Leipzig vegna hárra krafa um kaupfé. Tilboði spænska liðsins var hafnað þá en samkvæmt The Athletic hefur Real lagt fram tilboð upp á um 120 milljónir evra sem er nærri verðmiða Leipzig. Viðburðarríkur félagsskiptagluggi Í sumar hefur Real Madrid þegar gengið frá kaupum á Bernardo Silva, frá Manchester City, Ibrahima Konaté, frá Liverpool, Denzel Dumfries, frá Inter Milan, Marc Cucurella, frá Chelsea, og Carlos Espí, frá Levante. Madrídingar vinna einnig að því að fá miðjumanninn Rodri, besta leikmann heimsmeistaramótsins, frá Manchester City. Dani Ceballos, Dani Carvajal og David Alaba yfirgáfu allir Real í sumar eftir að samningar þeirra runnu út. Gonzalo García og César Palacios voru seldir til Fulham og Fran García til Real Betis. José Mourinho tók við þjálfun Real Madrid í sumar eftir að hafa áður stýrt liðinu milli 2010 og 2013.
Spænski boltinn Þýski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira