Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Freyja Þórisdóttir skrifar 3. ágúst 2026 17:55 Höskuldur segir mikla umferð hafa verið á landshlutanum í dag en fjöldi fólks gerði sér ferð út á land um helgina. Unnið sé að því að opna aftur vegkaflann þar sem áreksturinn varð. Vísir Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu.
Bílarnir skullu saman úr sitthvorri akstursáttinni, staðfestir Höskuldur B. Erlingsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi Vestra, í samtali við blaðamann Vísis. Tveir bílanna eru mjög mikið skemmdir og með öllu óökufærir segir hann en sá þriðji var með hjólhýsi í eftirdragi og sá fór best út en er þó mikið skemmdur. Enginn var fluttur á sjúkrahús eftir áreksturinn staðfestir Höskuldur. Hann segir áreksturinn tilkominn vegna framúraksturs og biðlar til vegfarenda að sleppa því að taka fram úr, umferðin sé það þung í dag að það borgi sig engan veginn. „Við viljum vinsamlegast fá fólk til að sýna stillingu en það eina sem þú hefur upp úr því að taka fram úr er að draga upp að næstu bílalest,“ segir Höskuldur í samtali við blaðamann og bætir við „við verðum að sýna þolinmæði og stillingu.“ Hann greinir frá því að áreksturinn hafi verið verulega harður og að bílarnir hafi hafnað utan vegar en viðbragðsaðilar voru á vettvangi um stund og myndaðist þá bílaröð. Ekki þótti nauðsynlegt að kalla úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bílar Lögreglumál Umferð Húnabyggð Húnaþing vestra Tengdar fréttir Bíll fór út af á Hrútafjarðarhálsi og lögregla biðlar til fólks að sýna þolinmæði Óljóst er hver tildrög slyss á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi fyrir skömmu voru en viðbragðsaðilar eru nýkomnir á vettvang. Svo virðist sem farþegar og ökumenn tveggja bíla sem voru í árekstrinum séu meidd en ekki liggur fyrir hversu alvarlega áverka þau hlutu. 3. ágúst 2026 18:26 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Myrtu fjörutíu manns í kirkju Erlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira
Bíll fór út af á Hrútafjarðarhálsi og lögregla biðlar til fólks að sýna þolinmæði Óljóst er hver tildrög slyss á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi fyrir skömmu voru en viðbragðsaðilar eru nýkomnir á vettvang. Svo virðist sem farþegar og ökumenn tveggja bíla sem voru í árekstrinum séu meidd en ekki liggur fyrir hversu alvarlega áverka þau hlutu. 3. ágúst 2026 18:26