Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2026 22:16 Casemiro með treyju númer fimm hjá Inter Miami en hann mun spila í henni á næstu leiktíð og jafnvel lengur. AP/Marta Lavandier Casemiro er orðinn liðsfélagi Lionel Messi hjá Inter Miami og hann kallaði Messi guð á fyrsta blaðamannafundi sínum sem leikmaður bandaríska liðsins.
Casemiro samdi við Inter Miami í síðustu viku til loka MLS-tímabilsins 2027, með framlengingarmöguleika til júní 2029. Þessi 34 ára gamli leikmaður sagðist hafa haft nokkra möguleika á því hvar hann gæti haldið ferli sínum áfram eftir að hafa yfirgefið Manchester United í lok síðasta tímabils, en aðdráttarafl Miami og að spila við hlið Messi hafi vegið mest. „Fyrir mér er enginn vafi á því að ég kem hingað aðeins til að spila með besta leikmanni allra tíma,“ sagði Casemiro við fréttamenn á fimmtudag þegar hann var kynntur á nýjum heimavelli sínum í MLS. 🚨CASEMIRO:"Now I just want to win alongside him, whatever we can. I want to enjoy every moment with Messi, ONE of the gods. if not the God of football, & keep moving forward."Messi fans again spreading fake quotes and making up their own happiness.pic.twitter.com/N2bRIqrRcn— The CR7 Timeline. (@TimelineCR7) July 30, 2026 „Ég vil njóta þess, ég vil hjálpa honum að halda áfram að sigra því hann er sigurvegari. Annar leikmaður er að bætast í hópinn sem vill sigra, sem vill keppa,“ sagði Casemiro. Hafði aðra möguleika „Ég er þar sem ég vil vera í MLS-deildinni. Ég fór frá Manchester United frjáls ferða minna. Ég hafði möguleika á Ítalíu, hjá öðrum liðum á mismunandi stöðum, en ég er þar sem ég vil vera. Ég vil njóta þess að vera með honum, hjálpa honum að sigra og gera hann enn stærri. Hann er einn af, ef ekki guð fótboltans, og ég vil hjálpa honum,“ sagði Casemiro. Síðan Messi gekk til liðs við Miami árið 2023 hefur liðið unnið deildabikarinn 2023, Supporters' Shield 2024 og MLS-bikarinn 2025. Casemiro lék áður í níu tímabil með Real Madrid, þar sem Barcelona með Messi innanborðs var helsti keppinauturinn. Dreymdi um að spila með honum „Miðað við öll vandræðin sem Messi olli mér, þá dreymdi mig auðvitað um að spila með honum. Ég vildi alltaf spila með þeim bestu. Ég gat aldrei stöðvað hann, ég þurfti alltaf hjálp frá liðsfélögum mínum. Ég er mjög ánægður með að vera núna með honum og ég vil halda áfram að sigra með honum,“ sagði Casemiro. Messi hefur ekki spilað fyrir Inter Miami síðan á HM, þar sem hann skoraði átta mörk og leiddi Argentínu til síns annars úrslitaleiks í röð, þar sem liðið tapaði 1-0 fyrir Spáni. Hinn 37 ára gamli leikmaður sneri aftur úr fríi í Argentínu til að hefja æfingar hjá Miami á miðvikudag, þótt óvíst sé hvenær hann snýr aftur inn á völlinn. Casemiro lék einnig á HM og spilaði alla fimm leikina fyrir brasilíska landsliðið sem féll úr leik á móti Noregi í 16-liða úrslitum. ¡ESPECTACULAR! Casemiro declaró que dejó de lado muchas ofertas de Europa para jugar con Messi en Miami: "EL DIOS DEL FÚTBOL" sentenció. 📹 Inter Miami CF pic.twitter.com/lureb4Fovg— SportsCenter (@SC_ESPN) July 30, 2026
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Enski boltinn Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Sport Fleiri fréttir Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Sjá meira