Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Jakob Bjarnar skrifar 31. júlí 2026 11:20 Umsjónarmenn hlaðvarpsins Komið gott, þær Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir eru enn að kljást við fjölmiðlanefnd sem krefst þess að þær skrái hlaðvarp sitt sem fjölmiðil. vísir/vilhelm Þrátt fyrir að Vísir hafi sagt af fyrirætlunum ráðuneytis Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem ganga út á að skera hlaðvarpara úr snöru fjölmiðlanefndar, er sem nefndin vilji ekki sleppa takinu á þeim stöllum í Komið gott – Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem svara fyrir sig.
Vinna er hafin innan menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við að breyta lögum um fjölmiðla. Ein helsta fyrirhugaða breytingin er að hlaðvörp verða ekki lengur skráningarskyld sem fjölmiðlar. Þannig virðast hlaðvarparar hafa unnið stríðið við Fjölmiðlanefnd, sem geisað hefur um nokkur misseri. Þetta þýðir hins vegar ekki að fjölmiðlanefnd hafi sleppt takinu á þeim Ólöfu og Kristínu, ekki ef marka má bréfaskipti þeirra á milli. Og öfugt, ef því er að skipta en ekki er ljóst hvor er veiðimaðurinn og hvor bráðin í þessum skylmingum. Ágreiningurinn er enn sem áður um hvort yfirleitt beri að skilgreina hlaðvörp sem fjölmiðla. Raunverulegt fjölmiðlafólk og svo hlaðvarparar Ólöf stendur enn í bréfaskriftum við fjölmiðlanefnd og hún furðar sig á áhuga nefndarinnar nú þegar nefndin hljóti að vera önnum kafin við að sinna aðkallandi verkefnum er varða þjóðaratkvæðagreiðsluna sem verður 29. ágúst; að stemma stigu við upplýsingaóreiðu. „Varðandi síðasta erindi ykkar til okkar, þann 2. júlí síðastliðinn, þá ítreka ég það sem áður hefur komið fram í okkar samskiptum að sú starfsemi sem við Kristín höldum úti undir merkjum Komið gott er ekki fjölmiðlun og fyrirtækið er ekki fjölmiðill. Ólöf Skaftadóttir annar tveggja umsjónarmanna Komið gott ásamt Margréti Helgu Erlingsdóttur hefur verið að skrifast á við fjölmiðlanefnd nú um hríð.vísir/vilhelm Því höfnum við furðulegri skilgreiningu fjölmiðlanefndar á okkar vörumerki. Ég set hins vegar raunverulegt fjölmiðlafólk í CC á þessum pósti svo fólk sé upplýst um þá staðreynd að nefndin ætlar áfram að hrella okkur vinkonurnar þrátt fyrir yfirlýstan vilja stjórnvalda um annað,” segir í bréfi sem Ólöf sendi Fjölmiðlanefnd í þessum mánuði. Í bréfinu sem Ólöf nefndir er vísað til fyrri samskipta og erindis Fjölmiðlanefndar 30. apríl síðastliðinn. „Á fundi nefndarinnar þann 30. júní sl. var fjallað um málefni hlaðvarpa. Fjölmiðlanefnd starfar samkvæmt gildandi lögum og var samþykkt að ítreka fyrrgreint erindi um skráningu til stjórnenda hlaðvarpsins Komið gott.” Elfa Ýr Gylfadóttir er framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar.vísir/vilhelm Þá segir: Eins og kom fram í erindi Fjölmiðlanefndar, dags. 30. apríl sl., hvetur nefndin stjórnendur hlaðvarpsins til að sinna lögbundinni skráningarskyldu. Telji stjórnendur hlaðvarpsins að starfsemi þess teljist ekki til fjölmiðlunar og falli þar með utan gildissviðs laga um fjölmiðla, skal koma athugasemdum þess efnis á framfæri með tölvupósti,“ segir í bréfi fjölmiðlanefndar. Fjölmiðlanefnd hljóti að vera í bólakafi í upplýsingaóreiðunni Í svarbréfinu örlar fyrir háði en Ólöf segir þær Kristínu mannvini sem vilji síst ónáða starfsmenn og stjórn fjölmiðlanefndar á þessum annasömu tímum. Því séu þær reiðubúnar að sýna því fullkominn skilning ef svör kunni að dragast, þrátt fyrir reglur um málshraða stjórnvalda, um eftirfarandi sem við beinum til nefndarinnar: „Með vísan til 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 óskum við eftir ykkar liðsinni um hvernig skuli breyta okkar starfsemi svo stofnunin geti andað léttar og snúið sér að þeim verkefnum sem í raun og sann eru knýjandi og á borði nefndarinnar,“ segir í bréfi til fjölmiðlanefndar. Kristín Gunnarsdóttir úr hlaðvarpinu Komið gott fer fyrir nýrri upplýsingadeild Landsbanka og hún hafnar því alfarið að hún sé blaðamaður.vísir/vilhelm Á móti lýsir Ólöf þær stöllur reiðubúnar að veita þeim liðsinni varðandi þá upplýsingaóreiðu sem gætir um þessar mundir og varðar þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram undan er. „Við gætum sent dæmi um þessa óreiðu sem rekur á okkar fjörur, úr fjölmiðlum, frá nágrönnum, vinnufélögum, vinum og vandamönnum. Er vefgátt eða sérstakur starfsmaður á ykkar snærum sem við gætum verið í sambandi við, hvað þá aðstoð okkar Komið gott-systra til ykkar, starfsmanna nefndarinnar, varðar?“
Hlaðvörp Fjölmiðlar Stjórnsýsla Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott. 13. júní 2026 10:00 Fjölmiðlahugtakið sagt útþynnt og gagnslaust Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður hjá RÚV, segir fjölmiðlahugtakið nú orðið svo útþynnt, bæði í fjölmiðlalögum og í framkvæmd fjölmiðlanefndar, að það sé í hans huga orðið nær algerlega merkingarlaust. 10. apríl 2026 11:00 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira
Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott. 13. júní 2026 10:00
Fjölmiðlahugtakið sagt útþynnt og gagnslaust Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður hjá RÚV, segir fjölmiðlahugtakið nú orðið svo útþynnt, bæði í fjölmiðlalögum og í framkvæmd fjölmiðlanefndar, að það sé í hans huga orðið nær algerlega merkingarlaust. 10. apríl 2026 11:00