„Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 29. júlí 2026 15:23 Ásgeir var að elda morgunmat þegar hann sá mink fyrir utan gluggann. Vísir/Lýður Valberg Eigandi síðasta minkabús landsins ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir að bróðurparti minkanna hafi verið sleppt í morgun. Skothvellir hafa ómað í Mosfellsdal í dag. „
Mér líður náttúrulega ekki vel,“ segir Ásgeir Pétursson, eigandi síðasta minkabús landsins, Dalsbú í Mosfellsdal, við Tómas Arnar Þorláksson, fréttamann Sýnar. Ásgeir var að útbúa morgunmat í morgun þegar hann leit út um gluggann og sá mink þar fyrir utan. Annar minkur var fyrir utan útidyrahurðina og þegar hann gekk inn í minkabúið sjálft blasti við honum heilt haf minka. Þeir eru alla jafna í búri en búið var að opna öll búrin og loka gildrum sem eru settar til að veiða dýrin. Sumir minkanna drápust í átökum við hvorn annan.Vísir/Lýður Valberg „Þetta er stórskaði. Þetta er ekki bara skaði fyrir mig heldur líka fyrir þá sem ég versla við. Við erum hérna með sláturhús sem við tökum allt frá það sem þú vilt ekki éta, það éta minkarnir.“ Fylgst var með vendingum dagsins hér í vaktinni. „Þeir eru skotnir“ „Þetta var ekki einn maður. Það tekur líka tíma að skella og loka gildrum sem við notum til að veiða dýrin,“ segir Ásgeir. Á milli tíu og tólf þúsund minkar voru í búinu og komst töluverður fjöldi þeirra út úr húsinu og út fyrir öryggisgirðingu í kringum húsið. Um klukkustund eftir að atvikið hafði verið tilkynnt til lögreglu hófst töluverð skothríð. Tekist hefur að fanga einhverja minka.Vísir/Lýður Valberg „Þetta eru fim dýr sem við viljum ekki hafa í náttúrunni, enda eru búnir að vera skothvellir hérna í kringum minkabúið alveg frá klukkan átta í morgun,“ segir hann. „Lögreglan er búin að vera að reyna að ná þessu lifandi með okkur en allt sem við náðum ekki og hafa farið lengra frá búinu. Þeir eru skotnir. Ég veit ekki hvað þeir eru margir sem er búið að skjóta en það voru margir skothvellir.“ Þrátt fyrir stöðu mála segist hann þakklátur fyrir hvað margir komu honum til aðstoðar. „Ég er þakklátur fyrir það að ég er með fullt af góðu fólki, gamlir loðdýrabændur hér á Suðurlandi hafa komið til að hjálpa okkur og við erum um allt að tína dýrin.“ Mun finna sér leið Ásgeir telur að innbrotið hafi verið vel skipulagt en brotist hefur verið inn í svínabú og kjúklingabú nærri honum á undanförnum vikum. Ásgeir segist þakklátur öllum sem hafa aðstoðað hann í dag. Búrin sem minkarnir voru í sjást hér fyrir aftan.Vísir/Lýður Valberg „Eftir að ráðist var á þau var okkur ráðlagt að setja myndavélar út um allt. Þetta fólk sem er að þessu skipuleggur sig það vel og lætur ekki sjá sig.“ Hann ætlar samt ekki að láta innbrotið á sig fá. „Ég er ekki búinn að missa kjarkinn. Ég finn leiðir. Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig, þeir þurfa að nota einhverjar aðrar aðferðir til þess.“
Loðdýrarækt Dýr Minkum sleppt í Mosfellsdal Mosfellsbær Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Tengdar fréttir Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Íbúar og ræktendur í Mosfellsdal og nærsveitum eru verulega áhyggjufullir eftir að hundruð ef ekki þúsundir minka sluppu úr búrum sínum í morgunsárið. Lögregla rannsakar innbrot í búið. Brotist var inn í svínabú í maí og kjúklingabú í júní. 29. júlí 2026 10:55 Allir á hlaupum að reyna fanga minka Aðstoðarlögreglustjóri segir að rökstuddur grunur sé um að brotist hafi verið inn í minkabú og dýrunum hleypt úr búrunum. Alls hafi verið á milli tíu og tólf þúsund minkar í búinu en fjöldi viðbragðsaðila kemur að því að fanga minkana sem sluppu. Mikið sé undir. 29. júlí 2026 13:35 „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. 29. júlí 2026 12:06 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sjá meira
Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Íbúar og ræktendur í Mosfellsdal og nærsveitum eru verulega áhyggjufullir eftir að hundruð ef ekki þúsundir minka sluppu úr búrum sínum í morgunsárið. Lögregla rannsakar innbrot í búið. Brotist var inn í svínabú í maí og kjúklingabú í júní. 29. júlí 2026 10:55
Allir á hlaupum að reyna fanga minka Aðstoðarlögreglustjóri segir að rökstuddur grunur sé um að brotist hafi verið inn í minkabú og dýrunum hleypt úr búrunum. Alls hafi verið á milli tíu og tólf þúsund minkar í búinu en fjöldi viðbragðsaðila kemur að því að fanga minkana sem sluppu. Mikið sé undir. 29. júlí 2026 13:35
„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. 29. júlí 2026 12:06