„Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. júlí 2026 12:02 Víkingsliðið er nálægt því að ná stórum áfanga. vísir / DIEGO Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings segir liðið hafa sýnt mikil þroskamerki í síðustu Evrópuleikjum og vonar að spennustigið verði rétt stillt fyrir seinni leikinn gegn Hapoel Be‘er Shiva í kvöld.
Víkingur er með 2-1 forystu í einvíginu eftir fyrri leikinn í Víkinni. Sigurliðið fer áfram í þriðju umferð undankeppni Meistaradeildarinnar, og tryggir sér þar með þátttöku í Sambandsdeildinni hið minnsta. Tapliðið dettur niður í undankeppni Evrópudeildarinnar en er öruggt um allavega umspilseinvígi í undankeppni Sambandsdeildarinnar. „Ég var mjög ánægður með fyrri leikinn. Spilamennskan var góð og við lögðum mikið í leikinn. Uppleggið virkaði vel og það sem ég bað strákana um fyrir leikinn, að vera hugrakkir á boltanum og gera allt í okkar valdi til að ná stjórn á boltanum, þeir gerðu það mjög vel. Við brugðumst vel við mótlæti, að fá á okkur mark. Klaufalegt mark sem við fengum á okkur en við lentum í erfiðleikum og unnum okkur aftur inn í leikinn. Ég var virkilega sáttur með það og finnst mikil þroskamerki í okkar leik, líka í einvíginu gegn Györ þar sem við þurfum að koma til baka,“ segir Sölvi Geir þjálfari Víkings í samtali við Vísi. Uppskrift sem virkaði vel Pressa Víkings virkaði vel í fyrri leiknum og Sölvi var sáttur með það eftir leik að ísraelska liðið hafi neyðst til að sparka út frá marki undir lokin. Má búast við því að Víkingar fylgi sömu uppskrift í kvöld? „Það fer algjörlega eftir því hvernig þeir spila. Við þurfum að vera viðbúnir því að þeir breyti sennilega einhverju hjá sér og gætu líka breytt til á meðan leik stendur. Við þurfum að vera klárir í hvað sem er en ef þeir ætla að spila sig út frá marki, eins og þeir gerðu síðast, þá framkvæmum við sömu pressuna. Við þurfum bara að vera skynsamir og velja réttu augnablikin. Þolinmóðir líka þegar erfiðu kaflarnir koma, gera hlutina rétt og ná stjórn á leiknum aftur. Þetta verða erfiðar níutíu mínútur þar sem fókusinn þarf að vera á allan tímann.“ Læra af reynslunni Fyrir um ári síðan féll Víkingur á stóru prófi í Evrópueinvígi gegn Bröndby. Nú stendur liðið á barmi þess að ná yfirlýstu markmiði sínu um að komast í Sambandsdeildina. Sölvi segir liðið hafa sýnt þroskamerki og vonar að það takist að stilla spennustigið rétt af í kvöld. „Þetta er mikil heilaleikfimi sem hver og einn leikmaður þarf að fara í, að stilla spennustigið. Við lentum í því eftir Evrópueinvígi að vera komnir í venjulegan deildarleik og þurfa þá að lyfta upp spennustiginu. Þetta er mikil tækni sem þarf að þjálfa því að sama skapi í stóru leikjunum þarftu að róa þig niður. Oftast kemur það með reynslunni og við erum með marga mjög reynda leikmenn. Við erum líka alltaf að búa til meiri og meiri reynslu innan hópsins. Vonandi nýtist það okkur núna.“ Yfirvinna hjá öllum sjúkraþjálfurum og -nuddurum Víkingar fá einn auka hvíldardag núna, miðað við að fyrri leikurinn gegn Hapoel Be‘er Shiva fór fram á þriðjudegi og sá seinni á miðvikudegi. Leikjaálagið síðustu vikur er samt farið að segja til sín. „Það eru bara allir sjúkraþjálfarar og nuddarar búnir að vera í massívri yfirvinnu núna síðustu vikurnar. Þeir eiga risaþátt í þessu, mennirnir bakvið tjöldin. Þeir eyða tímunum saman, langt fram á kvöld, að sjá til þess að leikmennirnir séu í sem bestu formi. Við gætum þetta ekki án þeirra… Niko og fleiri leikmenn eru búnir að vera í miklu eftirliti en við gerum allt til að þeir séu sem ferskastir,“ sagði Sölvi að lokum.
Víkingur Reykjavík Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tengdar fréttir Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Víkingur tók á móti Keflavík í Bestu deild karla í gær og sýndu Víkingar sitt rétta andlit í leiknum. 25. júlí 2026 10:32 Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fleiri fréttir Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Sjá meira
Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Víkingur tók á móti Keflavík í Bestu deild karla í gær og sýndu Víkingar sitt rétta andlit í leiknum. 25. júlí 2026 10:32