Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. júlí 2026 08:53 Ómerktum lögreglubíl hefur verið lagt við heimreiðina að búinu og blaðamönnum neitað um aðgengi. Nágranni búsins náði mynd af mink í garði sínum í morgun. Mörg hundruð ef ekki þúsund minkum var sleppt út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi, í nótt. Íbúar í nágrenninu óttast um lífríkið á meðan minkarnir ganga lausir. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Heimildir fréttastofu herma að vísbendingar séu uppi um að um sé að ræða sömu aðila og stóðu að innbrotum í Reykjabú í Mosfellsdal í júní og í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Þá sé unnið að því að klófesta þá minka sem sluppu út. Reynir Grétarsson íbúi í Mosfellsdal náði mynd af þessum mink í garði sínum í morgun.Reynir Grétarsson Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu, sem barst um klukkan níu, segir að um sé að ræða nokkur hundruð minka. Tilkynning um málið hafi borist lögreglu um klukkan sjö. Ekki sé ljóst hvað átti sér stað en unnið sé að rannsókn málsins. Viðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir hafi verið upplýstar um málið og brugðist við. Yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun telur að fjöldi minka hlaupi á þúsundunum. Það passar við orð bóndans í viðtali við Bændablaðið í fyrra um að 2300 minkar væru á búinu. Það var Helga Skowronski sem greindi fyrst frá atvikinu í Facebook-hópnum Íbúar í Mosfellsdal í morgun og varaði nágranna við. „Það er einhver effing fáviti búinn að hleypa út öllum minkunum. Passið fuglana ykkar,“ sagði Helga, sem hefur tengsl við búið samkvæmt upplýsingum Vísis. Hvorki Helga, Ásgeir Pétursson eigandi Dalsbús né lögregla vildu ræða við Vísi þegar eftir því var leitað í morgun. Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot. „Við höfum ekki orðið vör við mink en ég verð heima með hundinn í dag,“ segir Tómas Atli Ponzi, bóndi að Brennholti í Mosfellsdal. „Þetta er alveg skelfilegt fyrir lífríkið, fyrir fuglalífið og allt fólkið hér og náttúruna. Tómas heldur meðal annars hænur og segist hafa misst allt að 20 hænur þegar minkar hafa sloppið frá búinu. Mikið hafi verið kvartað undan minkabúinu en ekkert að gert. Annar minkur að læðast í grennd við heimili Reynis Grétarssonar. Hann býr í næsta nágrenni við búið.Reynir Grétarsson „Það eru þrír minkaveiðimenn reglulega hér í dalnum að fylgjast með og athuga hvort það eru minkar á svæðinu. Það segir sína sögu,“ segir Tómas. Bjarni Bjarnason á Hraðastöðum, þar sem rekinn er húsdýragarður, segist hafa verið að frétta af málinu nú fyrir stundu. Hann segir dýrin á bænum í öruggum búrum. Þá sé von til þess að öryggisgirðing í kringum minkabúið haldi dýrunum frá því að sleppa út, nema skemmdarverk hafi verið unnin á henni. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Smellið á F5 ef vaktin birtist ekki strax.
Loðdýrarækt Dýr Mosfellsbær Minkum sleppt í Mosfellsdal Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sjá meira