Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar 27. júlí 2026 09:31 ,,Það er örugglega fínt að naga blýanta þar“ sagði gamall kunningi sem ég hafði ekki hitt lengi, þegar ég sagði honum að ég ynni í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Margir kannast við slík viðhorf gagnvart starfsfólki Stjórnarráðsins. Undirliggjandi er sú trú að þar starfi heill her af verkasmáu starfsfólki sem hafi lítið að gera og njóti mikils starfsöryggis, stuttra vinnudaga og litlu skipti hvort það mæti í vinnuna eða ekki. Við tökum því gjarnan sem gefnu að íslensk stjórnsýsla virki. Að lög séu vel undirbúin, ákvarðanir byggðar á traustum gögnum og upplýsingum og að stjórnvöld geti brugðist hratt og rétt við þegar á reynir. Þetta er ekki svo einfalt. Í Stjórnarráðinu vinnur starfsfólk sem býr yfir mikilli þekkingu. Þar starfa sérfræðingar í heilbrigðis-, umhverfis-, mennta-, samgöngu-, og alþjóðamálum auk margra annarra. Þetta fólk, sem stundum er kallað blýantanagarar, vinnur að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem hafa áhrif á íslenskt samfélag á hverjum degi. Það undirbýr mál fyrir ráðherra, semur frumvörp, reglugerðir og stefnumótandi áætlanir, veitir faglega ráðgjöf og greinir gögn. Þetta starfsfólk sinnir samskiptum við almenning, sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki og hagsmunasamtök, tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi, gætir hagsmuna Íslands gagnvart innlendum og erlendum samstarfsaðilum og fylgist grannt með efnahagsmálum, umhverfismálum, menntun, heilbrigðismálum, öryggismálum og stafrænni þróun og er þá fátt eitt talið. Einnig þarf að tryggja að stjórnsýslan starfi í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og almannahagsmuni. Með sérfræðiþekkingu sinni, ábyrgð og metnaði leggur starfsfólk Stjórnarráðsins grunn að upplýstri ákvarðanatöku. Þegar við stöndum frammi fyrir heimsfaraldri, náttúruhamförum eða efnahagsáföllum reynir sérstaklega á getu stjórnsýslunnar til að bregðast við. Sérfræðiþekking ríkisins er sameiginleg auðlind okkar allra. Sterk stjórnsýsla byggist á skýrri hlutverkaskiptingu starfsfólks og kjörinna fulltrúa. Starfsfólk tekur ekki pólitískar ákvarðanir, það gera kjörnir fulltrúar sem bera á þeim lýðræðislega ábyrgð. Fólk gerir sér oft ekki grein fyrir því hversu fámenn stjórnsýslan er. Í því samhengi má draga fram að forsætisráðuneytið er rétt um fjörutíu manna vinnustaður og að rúmlega sextíu starfa hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu eða álíka margir og í meðalstórum grunnskóla. Þá hefur Stjórnarráðið sætt viðvarandi aðhaldskröfu undanfarin ár sem hefur kostað uppsagnir og niðurlagningu mikilvægra starfa. Í slíku umhverfi veitir áminningarskylda enga vörn og starfsöryggið minnkar. Þrátt fyrir stífa aðhaldskröfu stendur Stjórnarráðið frammi fyrir vaxandi áskorunum. Verkefnum fjölgar stöðugt og þau verða flóknari í samfélagi sem krefst gagnsæis, fumlausrar úrvinnslu og hraða. Á sama tíma er samkeppni um gott starfsfólk hörð s.s. við alþjóðastofnanir og einkageirann þar sem oft bjóðast hærri laun, meiri sveigjanleiki og skýrari starfsþróun.Það er auðvelt að draga þá ályktun út frá umræðu í fjölmiðlum og spjallþáttum að starfsfólk Stjórnarráðsins sé á ofurlaunum. Í samantekt Alþingis frá í vor um launahæstu ríkisstarfsmenn komust fáir starfsmenn Stjórnarráðsins þar á blað og kjör almenns starfsfólks Stjórnarráðsins eru víðsfjarri kjörum þeirra hæstlaunuðu. Þegar starfsfólk yfirgefur Stjórnarráðið tapast ekki aðeins mannauður heldur einnig stofnanaminni, sérþekking, tengslanet og reynsla sem hefur byggst upp á löngum tíma. Afleiðingarnar geta birst í minni skilvirkni, lengri afgreiðslutíma og aukinni hættu á mistökum við undirbúning og framkvæmd í opinberri stjórnsýslu. Öflug stjórnsýsla ræðst fyrst og fremst af fólkinu sem ber hana uppi. Það er því sameiginlegt hagsmunamál allra að skapa aðstæður sem laða að hæft starfsfólk. Samkeppnishæf kjör, raunhæft vinnuálag og raunveruleg tækifæri til faglegrar þróunar eru forsendur þess að ríkið geti sinnt lögbundnum verkefnum af þeim gæðum sem ætlast er til og þannig tryggt að stjórnsýslan hafi aðgang að þeirri sérfræðiþekkingu sem samfélagið þarfnast. Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
,,
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar