Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar 27. júlí 2026 08:00 Umfjöllun um stór samfélagsmál á að vera eðlilegur vettvangur fyrir skiptar skoðanir, vandaða rannsóknarblaðamennsku og málefnalega gagnrýni. Þegar tæpt er á grundvallarhagsmunum þjóðarinnar - líkt og samskiptum Íslands við Evrópusambandið og undirstöðum íslensks sjávarútvegs - aukast kröfurnar til allra viðkomandi: ráðherra, embættismanna og þeirra fjölmiðla sem miðla upplýsingum til almennings. Leiðrétting Vísis á þriðjudag, á frétt frá 9. júlí um meint samtöl utanríkisráðherra við forsætisráðherra Hollands, dregur fram áleitnar spurningar um hvernig opinberri umræðu er stýrt á Íslandi. Hvað gerðist Vísir hafði 9. júlí eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, í óbeinni ræðu, að yfirlýsing Robs Jettens um að full aðild að ESB feli í sér fulla þátttöku í sameiginlegu fiskveiðistefnunni væri ekki í samræmi við hennar eigin samtöl. Þrettán dögum síðar, 22. júlí, kom í ljós - í viðtali við Morgunblaðið um borð í spænsku herskipi - að ráðherrann hafði aldrei rætt við Jetten sjálfan. Vísir leiðrétti fréttina samdægurs. Blaðamanni Vísis er nokkur vorkunn: hann spurði um yfirlýsta afstöðu hollenska forsætisráðherrans og fékk svar sem vísaði óljóst til samtala við „Hollendinga og kollega”. Það var nærtæk ályktun að þar væri átt við menn með umboð til að tala fyrir hönd hollenskra stjórnvalda. Sú ályktun reyndist röng, en hún skapaðist ekki í tómarúmi - hún skapaðist af óskýru svari sem fékk að standa óleiðrétt dögum saman, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Morgunblaðsins til að fá skýringar og þrátt fyrir að hollensk stjórnvöld höfnuðu því skriflega þann 18. júlí að nokkur ráðherra eða embættismaður þeirra hefði rætt undanþágur við íslensk stjórnvöld. Samkvæmt siðareglum ráðherra ber þeim að hafa frumkvæði að leiðréttingu rangra eða villandi upplýsinga um málefni sem undir þá heyra, svo fljótt sem auðið er. Þrettán dagar, í máli sem snerti milliríkjasamskipti beint, samræmist illa þeirri kröfu. Trúnaði teflt fram og hafnað í senn Það sem stendur eftir er athyglisverðara en sjálft ranghermið. Þegar Morgunblaðið óskaði skriflegra svara um við hverja ráðherrann hafði rætt, barst sú skýring að um „óformleg samtöl” væri að ræða sem ávallt væru bundin trúnaði. Sama svar innihélt jafnframt ávítu á blaðið sjálft fyrir að hafa ekki sannreynt heimildir sínar - þrátt fyrir að frásögn Morgunblaðsins hafi byggst annars vegar á opinberum þinggögnum úr hollenska þinginu og hins vegar á skriflegu svari hollenska stjórnarráðsins. Hér liggur rökleysan: ekki er hægt að vísa opinberlega til nafnlausra erlendra viðmælenda til að draga í efa staðfesta yfirlýsingu erlends þjóðþings - staðfesta með 146 atkvæðum gegn 4 - og bera svo við trúnaði þegar spurt er hvað hafi í raun verið sagt og af hverjum. Frásögn sem ekki er hægt að sannreyna með þessum hætti hefur ekkert sönnunargildi í opinberri umræðu, hversu einlæglega sem hún kann að vera sett fram. Hugtakaruglingur sem ekki er tilviljun Annað atriði krefst nákvæmni. Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri ESB, ræddi í Financial Times um sérlausnir og svigrúm fyrir sveigjanleika innan gildandi stefnu - ekki um varanlegar undanþágur frá henni. Þetta er ekki merkingarfræðileg smámunasemi. Sérlausn er útfærsla innan ramma stefnunnar; varanleg undanþága þýðir að ríki stendur alfarið utan málaflokksins. Þegar þessu er slegið saman, eins og gerðist þegar ráðherra sagði í hlaðvarpsviðtali að Kadis hefði „stafað ofan í” íslensk stjórnvöld að varanlegar undanþágur væru raunhæfur kostur, verður til upplýsingaóreiða sem þjónar hvorki þeim sem vilja aðild né þeim sem vilja standa utan hennar. Engin þessara heimilda - hvorki þinggögn, skrifleg svör hollenskra stjórnvalda né ummæli Kadis í Financial Times — styður fullyrðingu um að varanleg undanþága frá sameiginlegu fiskveiðistefnunni sé í boði fyrir Ísland. Krafan er einföld Ef fullyrt er að tilteknir valkostir séu í boði í alþjóðasamningum, verða þeir að vera skriflegir, opinberir og sannreynanlegir. Ef vísað er til samtala við erlenda ráðamenn, verður að liggja fyrir hverjir áttu í hlut og í hvaða umboði. Ef fréttir reynast rangar, á að leiðrétta þær tafarlaust og með gagnsæjum hætti - ekki með endursögn kynntri sem orðréttri heimild. Stjórnmálamenn eiga að svara spurningum þegar eftir þeim er kallað, ekki ávíta þá sem spyrja. Fjölmiðlar eiga að sýna aðhald og krefjast staðfestingar áður en óljós svör verða að stórfrétt. Almenningur á rétt á að treysta því að upplýsingarnar sem honum eru bornar standist skoðun. Þegar froðan fýkur eiga staðreyndirnar einar að standa eftir — það er eina leiðin til að tryggja að ákvarðanir um framtíðarhag Íslands séu teknar af skynsemi og heilindum. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Fjölmiðlar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar