Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar 24. júlí 2026 08:30 Hjarðarbólsoddi í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi var ein fegursta náttúrusmíðin á ströndum Íslands. Öldur og straumar höfðu um teinaldir lagað ströndina þar í bárugarða sem hljóta að hafa gripið auga hvers sem þennan stað leit. Ekki spillir tilkomumikið örnefni. Flugmynd tekin til austurs yfir Hjarðarbólsodda og mynni Kolgrafafjarðar. 9. september 1991.Oddur Sigurðsson Í lýsingu Náttúruverndarstofnunar á Breiðafirði segir: „Verndarsvæði Breiðafjarðar heyrir bæði til Vestfjarða og Vesturlands, en það er verndað með lögum nr. 54/1995 um vernd Breiðafjarðar. Umhverfisráðherra fer með stjórn mála er varða vernd svæðisins en Breiðafjarðarnefnd er honum til ráðgjafar um allt er lýtur framkvæmd laganna.“ Í örnefnskrá Hjarðarbóls stendur: „Austur af holtunum [Oddaholtum] gengur slétt nes út í fjörðinn, er það kallað Hjarðarbólsoddi (13). Gegnt honum gengur annar oddi frá austurlandinu, sem heitir Kolgrafaoddi. Þessir oddar loka því nær firðinum, milli þeirra er mjótt, en djúpt sund, er þarna kallað í Oddum (14). Fjörðurinn fyrir framan Oddann mun áður hafa verið nefndur Urthvalafjörður, en fyrir innan Oddana Kolgrafafjörður.“ Árið 2003 var 850 m breitt fjarðarmynnið brúað milli Hjarðarbólsodda og Kolgrafaodda með 230 m langri brú og rúmlega 600 m löngum garði. Átta árum seinna drapst mikið af fiski í Kolgrafafirði og kenndu sumir um þrengingu á fjarðarmynninu. Loftmynd af mynni Kolgrafafjarðar frá 2002.Loftmyndir ehf. Loftmynd af mynni Kolgrafafjarðar frá 2009. Loftmyndir ehf. Þessi strönd Breiðafjarðar, sem friðuð var með lögum 1995, er ekki óröskuð eins og vísast var ætlast til með friðuninni. Búið er að brúa Hraunsfjörð, Gilsfjörð, Þorskafjörð Djúpafjörð, Gufufjörð, Mjóafjörð og Kjálkafjörð sem allir eru á friðaðri strandlengju. Auk þess hefur vegur verið lagður nánast í fjöruborðinu á nokkrum stöðum svo að hann hefur umtalsverð áhrif á lífríkið þar. Ekki er að undra þótt spurt sé: Er friðun málmyndagerningur sem engar afleiðingar hefur sé níðst á því sem friðað er? Hvert er hlutverk umhverfisráðherra í verndun friðlands? Lætur hann þetta óátalið? Hver á þá að berjast fyrir náttúru Íslands ef sjálfur umhverfisráðherra bregst? Höfundur er á eftirlaunum, fyrrum starfsmaður Orkustofnunar og Veðurstofunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar