„Þetta lítur bara illa út“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2026 11:30 Skagamenn fengu til sín stór nöfn fyrir tímabilið en gengi liðsins síðustu vikur hefur verið hræðilegt. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Skagamenn eru á slæmum stað í Bestu deild karla í fótbolta, búnir að tapa fimm deildarleikjum í röð og hafa fengið á sig sautján mörk í þessum fimm leikjum. Stúkan ræddi stöðuna á Skagaliðinu sem er á leið í harða fallbaráttu en ekki í toppbaráttuna eins og margir bjuggust við. „
Þeir eru að koma okkur neikvætt á óvart því þeir eru náttúrulega bara miklu neðar en ég bjóst við miðað við mannskap. Ég var held ég að spá þeim fjórða sæti fyrir mót,“ sagði Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar. „Núna eru þeir alveg að sogast niður í fallsæti, búnir að tapa fimm í röð og þetta lítur bara illa út,“ sagði Baldur. Jóhann Fjalar Skaptason sem sá um Stúkuna að þessu sinni vildi fá skoðun Bjarna Guðjónssonar á stöðunni í uppeldisbænum sínum. „Hefurðu áhyggjur?“ spurði Jóhann. Baldur Sigurðsson og Bjarni Guðjónsson ræða hér stöðuna á Skagaliðinu.Sýn Sport „Já, maður hefur áhyggjur og hættan við það þegar þú raðar inn svona mikið af stórum nöfnum á skömmum tíma er að hinir fara að búast við því að einhverjir fari að taka grípa boltann og þú þurfir að gera minna,“ sagði Bjarni en bætti við: Virkar ekki svoleiðis í fótbolta „Það bara virkar ekki svoleiðis í fótbolta. Þú ert með ellefu leikmenn þarna og það þurfa allir einhvern veginn að vera að vinna í sömu átt og leggja jafn hart að sér. Það er enginn einn leikmaður sem ber uppi heilt lið nema í einstaka tilfellum úti í heimi einhvers staðar en á Íslandi gerist það ekki,“ sagði Bjarni. „Þarna verða bara allir að vera með og þarna eru hugsanlega bara of margir sem gera ráð fyrir að einhverjir aðrir séu að halda boltanum eða keyra þetta áfram,“ sagði Bjarni. Hafa öll vopn sem þeir þurfa „Þeir hafa öll vopn sem þeir þurfa til þess að enda á fínum stað í haust en það er ákveðið bras núna. Að tapa fimm leikjum í röð, eins og Baldur segir, er þungt,“ sagði Bjarni. „Lárus Orri hefur dálítið komið fram í viðtölum og réttilega bent á svona ákveðna tölfræði, að þeir eigi að vera búnir að skora fleiri mörk og vera með fleiri stig, en það er kannski svona þessi væntu stig, væntu mörk og öll þessi tölfræði sem er til,“ sagði Baldur. Búnir að vera lifa í einhverri lygi „Það er alveg rétt. Þetta hafa verið naum töp í flestum leikjum. Þeir eru búnir að vera lifa í einhverri lygi en núna kemur bara skellurinn. Þetta var lélegasta frammistaða þeirra í sumar. Þetta er bara skellur á móti Keflavík, liði sem er ætlað að vera miklu neðar í deildinni. Þannig að það gæti verið einhver svona núllpunktur. Heyrðu, nú þurfum við bara aðeins að hreinsa til,“ sagði Baldur. „Þá er ég ekki að tala um í leikmannahópi eða eitthvað þannig. Bara setjast niður og nú ætlum við bara að núllstilla okkur og koma brjálaðir inn í næsta leik og byrja bara á að skora eitt mark og sjá hvert það leiðir okkur í þessa bestu tilfinningu í heimi sem er að vinna, ná einum sigri, sem að þeir þurfa svo sannarlega að fara að fá,“ sagði Baldur en það má horfa á alla umfjöllunina um Skagaliðið hér fyrir neðan. Klippa: Umræða um Skagamenn eftir fimm tapleiki í röð
Besta deild karla ÍA Stúkan Mest lesið Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Enski boltinn Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Fótbolti Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Handbolti Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti Berglind Katla fer í skóla í New York Körfubolti Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Körfubolti