Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júlí 2026 15:49 Grunur leikur á að metanóli hafi verið blandað í drykki sumra fyrri fórnarlamba á Nana Backpacker Hostel í borginni Vang Vieng. AP Eigandi áfengisverksmiðju í Laos hefur verið ákærður eftir að fjöldi fólks lést úr metanól-eitrun í borginni Vang Vieng, þar á meðal áströlsku bakpokaferðalangarnir Bianca Jones og Holly Morton-Bowles. Þær voru einungis nítján ára gamlar þegar þær létust eftir að hafa verið fluttar fárveikar á sjúkrahús í Tælandi. Foreldrar stúlknanna gefa lítið fyrir viðbrögð í Laos.
Ástralska ríkisstjórnin hefur í kjölfarið hækkað viðbúnaðarstig í ferðaviðvörunum sínum fyrir þá sem hyggjast leggja leið sína til Laos og ráðleggur ferðalöngum nú að „gæta ýtrustu varúðar“ vegna hættu á metanól-eitrun. Er þetta meðal þess sem kemur fram í umfjöllun breska fréttamiðilsins The Guardian. „Við höfum endurskoðað ráðleggingar okkar fyrir Laos og hækkað almennt viðbúnaðarstig í ferðaviðvörunum,“ segir nú í uppfærslu á ferðavefnum Smartraveller. Konurnar tvær, sem voru báðar nítján ára þegar þær létust, voru á ferðalagi um Suðaustur-Asíu þegar þær létust af völdum metanól-eitrunar eftir að hafa drukkið skot af áfengi sem líktist vodka á Nana-farfuglaheimilinu í borginni Vang Vieng. Gæti hlotið einungis þriggja mánaða dóm Foreldrar Biöncu hafa tjáð sig í fréttum um að fjölskyldur beggja kvenna séu í sárum vegna „óásættanlegra“ ákæra í tengslum við dauðsföllin sem endurspegluðu ekki alvarleika málsins. Greint er frá því í fréttum að dómstólar hafi sagt ákærurnar á hendur eiganda áfengisverksmiðjunnar sem framleiddi áfengið vera fyrir að selja matvæli sem eru heilsuspillandi og fyrir að reka ólöglega starfsemi. Það þýðir að hinn ákærði gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm sem væri á bilinu þrír mánuðir til fjögur ár og sekt ef hann verður fundinn sekur, er vitnað í yfirvöld í Laos. Fundust veikar í herberginu Atvikið kom upp í nóvember 2024 en þá létust einnig tvær danskar konur, bresk kona og bandarískur maður en maðurinn var fimmtíu og sjö ára þegar hann lést en konurnar voru hins vegar á tvítugsaldri. Penny Wong, utanríkisráðherra Ástralíu, sagði í yfirlýsingu á föstudagsmorgun að hún væri „mjög svekkt og biturlega vonsvikin“ yfir því að yfirvöld væru ekki að sækjast eftir „alvarlegustu ákærunum“ í tengslum við dauðsföll kvennanna er fram kemur í umfjöllun The Guardian. Danskir embættismenn hafa gefið frá sér svipaðar yfirlýsingar. Konurnar tvær, sem og hinir látnu ferðalangarnir, höfðu samkvæmt erlendum miðlum dvalið á Nana-farfuglaheimilinu, þar sem sumir drukku „ókeypis skot“ af laoskum vodka áður en þeir héldu á aðra skemmtistaði. Þegar áströlsku unglingarnir skráðu sig svo ekki út af farfuglaheimilinu morguninn eftir eins og áætlað var, fundust þær veikar í herbergi sínu og voru að lokum fluttar á sjúkrahús í Tælandi, þar sem þær létust síðar.
Laos Danmörk Ástralía Erlend sakamál Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira