Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2026 17:47 Johan Manzambi með nýja knattspyrnustjóranum Unai Emery eftir að gengið var frá samningnum í dag. @astonvilla Aston Villa hefur gengið frá kaupum á svissneska miðjumanninum Johan Manzambi frá Freiburg fyrir metfé.
Svissneski landsliðsmaðurinn flytur sig yfir á Villa Park í samningi sem slær út þær fimmtíu milljónir punda sem Villa greiddi Everton fyrir Amadou Onana fyrir tveimur árum. Villa er einnig nálægt því að ganga frá 38 milljóna punda kaupum á miðjumanni Wolves, Joao Gomes, sem yfirgaf æfingabúðir enska B-deildarliðsins í Portúgal á fimmtudag til að gangast undir læknisskoðun. View this post on Instagram A post shared by Aston Villa (@astonvilla) Manzambi var nálægt því að ganga til liðs við Newcastle í síðustu viku eftir að forráðamenn Newcastle náðu samkomulagi við Freiburg, en Villa brást skjótt við og stal honum frá Newcastle. Þessi tvítugi leikmaður skoraði þrjú mörk fyrir Sviss þegar liðið komst í átta liða úrslit á heimsmeistaramótinu. Hann spilaði gegn Aston Villa í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Istanbúl í maí þegar lið Villa vann 3-0 og batt þar með enda á þrjátíu ára bið eftir titli. Manzambi var valinn ungi leikmaður tímabilsins í Evrópudeildinni og skoraði sjö mörk í 47 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili, þegar Freiburg endaði í sjöunda sæti í þýsku Bundesligunni. Hann kemur til Villa á sama tíma og félagið þarf á styrkingu að halda á miðjunni eftir að hafa selt Youri Tielemans til Manchester United fyrir 35 milljónir punda. Villa er einnig án Onana fram á næsta ár eftir að hann varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum á HM með Belgíu. Fjárhagur Villa er þröngur þar sem félagið reynir að uppfylla fjármálareglur UEFA og vinstri bakvörðurinn Lucas Digne er nálægt því að ganga aftur til liðs við Paris St-Germain. View this post on Instagram A post shared by Aston Villa (@astonvilla)
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Sjá meira