Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. júlí 2026 15:12 Þetta vegabréf kostaði handhafann talsvert minna heldur en það kostar að endurnýja það. Stjórnarráðið Almennt gjald fyrir útgáfu nýrra vegabréfa hækkaði úr 14 þúsund krónum í 19 þúsund krónur á milli ára. Gjald fyrir hraðafgreiðslu hækkaði um 11.200 krónur og er nú 39.200. Verðskráin hækkaði talsvert umfram verðlag til að endurspegla betur tíma og kostnað ríkisins að sögn ráðuneytisins.
Í fjárlögum fyrir árið 2026 voru samþykktar breytingar á lögum um aukatekjur ríkissjóðs og gjöldin hækkuð hlutfallslega umfram verðlagsþróun. Frá desember 2022 til júlí 2025 tóku hækkanir á gjaldskrár sýslumanna mið af verðlagsþróun. Freyr Gígja Gunnarsson upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins segir í svari við skriflegri fyrirspurn fréttastofu að hækkunin hafi numið 20 prósentum umfram verðlagsþróun „til að endurspegla betur þann tíma og kostnað sem fellur til hjá ríkinu vegna veitingar þjónustu“. Ríkari kröfur og meiri kostnaður Áður en lögin tóku gildi 17. janúar síðastliðinn var almennt gjald fyrir útgáfu vegabréfs fyrir einstakling á aldrinum 18-66 ára 14.000. Gjald fyrir hraðafgreiðslu nam 28.000 krónum og neyðarvegabréf 7.500 krónur. Í kjölfar þess að lögin tóku gildi er almennt gjald 19.000 krónur, gjald fyrir skyndiútgáfu 39.200 krónur og fyrir neyðarvegabréf 10.500 krónur. „Þróun síðustu ára hefur verið á þá leið að verkefnum sem fylgja þjónustunni hefur fjölgað. Auknar kröfur fela í sér fleiri vinnustundir fyrir hvert mál auk þess sem gerðar eru ríkari kröfur um sérfræðiþekkingu og fleira. Eins og lesa má í greinargerð með frumvarpinu þótti tímabært að breyta og einfalda einstaka gjaldtökuheimildir. Nýjum var bætt við og gjöldin hækkuð almennt þannig að þau tækju mið af verðlagsbreytingum undanfarinna ára en gæfu líka réttari mynd af tíma og kostnaði ríkisins við að veita þjónustuna,“ segir Freyr Gígja. Frumvarpið má lesa í heild sinni með því að smella hér. Umfjöllun um þessi gjöld má finna á blaðsíðu 21. Allur gangur á norrænu verðlagi Talsverður breytileiki er á kostnaði við útgáfu vegabréfs á Norðurlöndunum. Í Svíþjóð kostar vegabréfsútgáfa til að mynda ekki nema 500 sænskar krónur sem nemur 6495 krónum íslenskum, og neyðarvegabréf 980 sænskar krónur sem nemur 12.729 krónum íslenskum. Í Noregi kostar nýtt vegabréf 840 norskar krónur sem nemur 10.911 íslenskum. Neyðarvegabréfið þar kostar hins vegar 1320 norskar krónur sem nemur 17147 íslenskum krónum. Í Noregi er neyðarvegabréf talsvert dýrara en á Íslandi en almennt gjald er hins vegar tæplega 9 þúsund krónum ódýrara á Noregi en Íslandi. Í Danmörku er verðlagið talsvert áþekkara og því á Íslandi. Almennt gjald fyrir útgáfu á vegabréfi er 894 danskar krónur sem nemur 17.125 krónum íslenskum. Hins vegar er algjörlega ókeypis að framlengja gildistíma vegabréfs hafi það runnið út innan þriggja mánaða frá því að lagt er í ferðalag. Fyrir neyðarvegabréf er rukkað sama gjald og það almenna og sömuleiðis fyrir flýtiþjónustu. Þetta er þó sett fram með þeim fyrirvara að til að mynda miðast flýtiafgreiðsla í Danmörku við að vegabréf sé afhent innan fimm daga en á Íslandi miðast almenn afhending við fjóra daga. Hraðafhending á íslensku vegabréfi kemur því í hendur umsækjanda innan tveggja daga frá umsókn. Í Svíþjóð miðast almennur afhendingartími sömuleiðis við viku og í Noregi einnig.
Vegabréf Fjármál heimilisins Neytendur Ferðalög Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira