Erlent

Skot­á­rás við Ála­borg

Jón Þór Stefánsson skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Getty

Skotárás hófst skammt frá Álaborg í Danmörku um tólfleytið á staðartíma. Fólk á svæðinu, sem er við Nørresundby, er hvatt til að leita sér skjóls. En að sögn lögreglu er árásinni sjálfri lokið.

Danskir fjölmiðlar hafa eftir lögreglunni í Norður Jótlandi að árásarmaður hafi verið skotinn, eftir að skotið var að lögreglunni.

Minnst þrír hafa orðið fyrir skoti, þar á meðal einn lögreglumaður og áðurnefndur árásarmaður. Ekki er vitað mikið um hvernig ástand þeirra er, en það er sagt alvarlegt.


Ert þú í eða við Álaborg. Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is


Margt er enn á huldu varðandi atburðarrásina, en svo virðist sem lögregla hafi fyrst verið kölluð til vegna tilkynningar um eld. En myndir frá vettvangi sýna svartan reyk. Í kjölfarið hafi skotbardagi hafist milli áðurnefnds árásarmanns og lögreglu.

Mikið viðbragð er á vettvangi.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×