Bowen heldur tryggð eftir fallið Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. júlí 2026 10:35 Bowen stefnir á að koma Hömrunum aftur upp í úrvalsdeild. EPA/VINCE MIGNOTT Jarrod Bowen hefur ákveðið að endurnýja samning sinn við West Ham og spila með liðinu í ensku Championship deildinni á næsta tímabili.
The Athletic greinir frá en Danny Dyer, tengdafaðir Bowen, virðist óvart hafa talað af sér og staðfest tíðindin í gærkvöld. West Ham féll í vor eftir fjórtán ára veru í ensku úrvalsdeildinni og talað var um að fyrirliðinn væri á förum. Félagið hefur nú þegar selt Mateus Fernandes til Tottenham fyrir 85 milljónir punda og búist er við því að Crysencio Summerville kveðji bráðlega. Bowen hefur verið einn besti leikmaður West Ham um árabil, eða síðan hann kom frá Hull City árið 2020. Hann skoraði 11 mörk og gaf 12 stoðsendingar í 42 leikjum er West Ham féll á síðasta tímabili en gerði ekki nóg til að heilla landsliðsþjálfara Englands, Tomas Tuchel, fyrir valið á HM-hópnum. Fáir fagna tíðindum jafn mikið og fyrrnefndur tengdafaðir Bowen, Danny Dyer, sem er einn ákafasti stuðningsmaður West Ham og fékk algjöran drauma-tengdason. „Fyrst og fremst er hann fjölskylda mín, faðir barnabarnanna minna, auðvitað. Þetta hefur verið honum erfitt. Hann á skilið að spila í Meistaradeildinni og hvaða ákvörðun sem hann tekur, eða tók, hefði ég stutt hann. Ég held að hann sé ekki á förum neitt og ég held að hann muni gjörsamlega slátra Championship-deildinni, ekki hafa neinar áhyggjur af því,“ sagði Dyer í gærkvöld samkvæmt TalkSport.
Enski boltinn West Ham United Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Handbolti „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Fleiri fréttir Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Sjá meira