Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Sindri Sverrisson skrifar 17. júlí 2026 09:31 Það er ekki aðuvelt að þekkja tvíburasysturnar í sundur. Þær bjuggu til gott mark fyrir FH í gærkvöld og voru nálægt því að búa til annað. Samsett/Sýn Sport Sextán ára tvíburasystur áttu magnaða innkomu í 6-1 sigri FH gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deildinni í fótbolta í gærkvöld. „Það er svo margt fallegt við þetta og dásamlegt fyrir fjölskylduna að eiga þetta á VHS,“ sagði Mist Rúnarsdóttir létt í Bestu mörkunum.
Það var komið fram á 74. mínútu þegar þær Unnur og Ragnheiður Thorarensen Skúladætur, eineggja tvíburasystur, komu inn á sem varamenn. Augnabliki síðar átti Unnur sprett og sendi boltann fyrir markið á Ragnheiði sem skoraði og það er úr sinni fyrstu snertingu í Bestu deildinni. Systurnar þurftu því bara nokkrar sekúndur saman í Bestu deildinni til að skora mark og voru nálægt því að skora annað. „Það er ekki bara þessi ótrúlega tvíburatenging. Þær vita náttúrulega pottþétt alltaf hvor af annarri. En það er líka ótrúlegt að þetta eru bara þeirra fyrstu snertingar í leiknum,“ sagði Mist í Bestu mörkunum en umræðuna og markið má sjá hér að ofan. „Það er gríðarlegur hraði í þeim báðum,“ benti Jóhann Fjalar Skaptason, stjórnandi þáttarins, á og Mist tók undir: „Þær hafa verið að gera frábæra hluti með ÍH, eins og svo margar af þessum ungu og efnilegu stelpum sem eru svo að taka skrefið upp i FH. Ég veit að margir stuðningsmenn FH hafa verið að bíða eftir þeim og vildu jafnvel sjá meira af þeim í fyrra. Þær eru bara fæddar 2009 en þær létu alla vega fólkið sem beið eftir þeim heldur betur fá eitthvað fyrir traustið. Ég hlakka til að fylgjast með þeim,“ sagði Mist og óhætt að taka undir þau orð. FH kom sér aftur á topp deildarinnar með sigrinum, eftir að hafa lent undir, en hér að neðan má sjá öll mörkin úr leiknum, meðal annars mark beint úr hornspyrnu.
Bestu mörkin Besta deild kvenna FH UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira