Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar 15. júlí 2026 12:01 Það er óhætt að segja að engin sparnaðarleið jafnist á við séreign. Þegar valið er að safna 2% af launum í séreign greiðir vinnuveitandi 2% á móti, sem þýðir í raun að samstundis fæst 100% „ávöxtun“ á sparnaðinn. Það er árangur sem engin önnur sparnaðarleið getur boðið upp á. Yfir tíma getur upphæðin sem safnast haft veruleg áhrif á það hvernig hægt er að haga starfslokum. Ef byrjað er t.d. að safna 4% af 700.000 kr. launum við 22 ára aldur og miðað er við 3,5% ársávöxtun yrði sjóðurinn kominn í u.þ.b. 55 milljónir kr. við 67 ára aldur. Það munar um minna! Þegar safnað er yfir svo langan tíma fer ávöxtun og kostnaður hins vegar að skipta miklu máli. Nýlega birtu þeir Gylfi Magnússon, hagfræðiprófessor við HÍ, og Kári Sigurðsson, sem starfar við eignastýringu í London, ítarlega fræðigrein í Tímariti um viðskipti og efnahagsmál um rannsókn þar sem þeir báru ávöxtun á séreignarsparnaði saman við ávöxtun í samtryggingu á Íslandi. Niðurstöður þeirra voru að meðalávöxtun á séreignarsparnaði sé lakari en hjá samtryggingardeildum lífeyrissjóða og nemi munurinn um 1,12 prósentustigum. Það hljómar kannski ekki mikið en yfir heila starfsævi getur hvert prósentustig skipt milljónum. Ef ávöxtunin í dæminu hér fyrir ofan er t.a.m. lækkuð úr 3,5% í 2,5% myndi sjóðurinn verða u.þ.b. 42 milljónir króna við 67 ára aldur, sem er lækkun um heilar 13 milljónir. Í viðtali við Morgunblaðið 26. júní sl. sagði Gylfi að þennan mun megi einkum rekja til tveggja þátta. Annars vegar hærri kostnaðar hjá fjárvörsluaðilum sem dragi úr ávöxtun enda sé sparnaðurinn „að miklu leyti í vörslu fjármálafyrirtækja sem rekin eru í hagnaðarskyni á meðan samtryggingarsjóðirnir eru reknir fyrir eigin sjóðfélaga og engan annan.“ Hins vegar megi rekja lægri ávöxtun til þess að sjóðfélagar velji ekki nægilega góða fjárfestingarleið fyrir séreignarsparnaðinn, t.d. með því að velja innlánsleiðir sem séu ekki skynsamlegar fyrir langtímafjárfestingu. Það er auðvitað ekki gott að heyra að ávöxtun séreignarsparnaðar sé að meðaltali ekki eins góð og hjá samtryggingardeildum lífeyrissjóða. Góðu fréttirnar eru hins vegar að með því að vanda valið á séreignarsjóði er hægt að losna bæði við háan kostnað og fá sambærilega ávöxtun og hjá samtryggingarsjóðum. Íslenskir lífeyrissjóðir eru til að mynda alfarið í eigu sinna sjóðfélaga og séreignarsjóðir þeirra eru því ekki reknir í hagnaðarskyni fyrir hluthafa heldur hafa það eina markmið að hámarka ávöxtun sjóðfélaganna. Lífeyrissjóðirnir reka heldur ekki kostnaðarsamar söludeildir og draga ekki þóknanir sölumanna af iðgjaldagreiðslum sjóðfélaga. Þá hefur LSR, stærsti lífeyrissjóður landsins, nýlega einfaldað framboð sitt á séreignarleiðum til að draga enn frekar úr kostnaði og auka samlegðaráhrif við rekstur samtryggingardeildar sjóðsins. Önnur tveggja séreignarleiða LSR, Verðbréfaleið, tekur þannig mið af fjárfestingarstefnu A-deildar og meðalraunávöxtunin (þ.e. ávöxtun umfram verðbólgu og að frádregnum kostnaði) síðustu 10 árin er áþekk, 3,9% fyrir A-deild og 3,7% fyrir Verðbréfaleið. Hún er í hópi þeirra séreignarsjóða sem hafa skilað hvað bestri ávöxtun sl. 10 ár samkvæmt samanburði Aurbjargar. Hin séreignarleiðin er innlánaleið sem er fyrst og fremst hugsuð fyrir sjóðfélaga sem eru að nálgast eftirlaunaaldur og vilja forðast sveiflur á inneign sinni síðustu árin fyrir útgreiðslur. Öðrum er ekki ráðlagt að nýta sér hana. Séreign er frábær sparnaðarleið en eins og niðurstöður rannsóknar Gylfa og Kára sýna er hægt að fá talsvert meira úr henni með því að velja rétta valkostinn af þeim fjölmörgu sem í boði eru. Það hljómar flókið en er það í rauninni ekki. Í fyrsta lagi ætti að velja séreignarleið sem hefur langtímaávöxtun að leiðarljósi og forðast innlánaleiðir nema stutt sé í úttekt sparnaðar. Í öðru lagi getur skipt verulegu máli að velja séreignarsjóð með lágan kostnað. Kynntu þér kostina og vandaðu valið. Höfundur er framkvæmdastjóri LSR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lífeyrissjóðir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar