Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar 15. júlí 2026 09:30 Hjá mörgum starfsstéttum s.s. í stjórnsýslunni hafa mörkin milli vinnu og einkalífs sjúskast mikið. Snjallsímar og samskiptaforrit gera það að verkum að margt starfsfólk er í raun alltaf innan seilingar, jafnvel þegar vinnudegi lýkur. Fólk lítur yfir vinnupóstinn á kvöldin, svarar símtali úr fríinu og þar fram eftir götunum. Verkefni hafa tilhneigingu til að taka lengri tíma en ætlað var og áður en varir hafa klukkustundir flogið þar sem starfsfólk rorrar við tölvuna á meðan aðrar skuldbindingar og áhugamálin bíða. Sítenging við vinnuna eykur streitu og kulnun og hefur truflandi áhrif á einkalífið. Sama má segja um það þegar fólk er veikt eða með lasið barn. Mörg okkar þekkjum það að sitja fjarfundi þar sem lasinn starfsmaður er fölur og fár á fundinum eða að bía veiku barni yfir öxlina á sér á meðan á fundinum stendur. Ekki eru mörg ár síðan að veikindarétturinn var heilagur hvað þetta varðar. Þetta er einmitt það sem Eurofound, rannsóknastofnun Evrópusambandsins um lífskjör og vinnuaðstæður, hefur rannsakað ítarlega í skýrslum sínum um réttinn til að aftengjast (e. right to disconnect). Niðurstöðurnar eru skýrar: starfsfólk þarf að vera í fríi utan vinnutíma ef tryggja á heilsu þess, vellíðan og sjálfbært atvinnulíf til lengri tíma litið. Áhrifin eru mælanleg. Þau sem verða reglulega fyrir vinnutruflunum utan vinnutíma greina oftar frá höfuðverk, bakverkjum, þreytu, kvíða og streitu en þau sem njóta raunverulegs réttar til að aftengjast. Eurofound bendir jafnframt á að áhrifin komi sérstaklega niður á konum, fólki á aldrinum 25–39 ára, foreldrum ungra barna og þeim sem vinna mikið í fjarvinnu. Rétturinn til að aftengjast felst ekki eingöngu í að starfsfólki sé „heimilt“ að sleppa því að svara starfstengdum erindum utan vinnutíma heldur ennfremur að engar væntingar séu gerðar um að vinnutengdum erindum sé sinnt þegar viðkomandi er í fríi nema að um það sé sérstaklega samið áður. Þótt stjórnandi gefi ekki bein fyrirmæli um að svara erindum skapast oft stofnanamenning þar sem starfsfólk telur sig alltaf þurfa að vera til taks. Tölvupóstar hrannast inn, verkefni bíða og fólk finnur fyrir samviskubiti ef póstum er ekki svarað strax og finnst þau vera að svíkjast undan. Vinnan fylgir fólki inn í kvöldin, helgarnar og sumarfríið. Til eru einfaldar lausnir, sem sumir vinnustaðir hafa tekið upp, sem tryggja að starfsfólk í orlofi fái t.a.m. ekki vinnupóst. Sendandinn fær t.d. sjálfvirk skilaboð um að viðkomandi sé í orlofi og póstinum er annaðhvort hafnað, eytt eða hann sendur sjálfkrafa til staðgengils. Með þessum hætti staflast ekki upp tölvupóstar á meðan fólk er í fríi. Vinnan heldur áfram án þess að þau sem eru í orlofi þurfi að grípa inn í. Mikilvægt er að skýr ákvæði séu um þetta í samningum og mannauðsstefnum fyrirtækja en það dugar þó ekki eitt og sér. Vinnuálag þarf að vera raunhæft og skýr stofnanamenning þar sem stjórnendur ganga sjálfir á undan með góðu fordæmi. Þetta er samstarfsverkefni sem þarf að ræða reglulega á vinnustöðum. Rétturinn til að aftengjast snýst alls ekki um að draga úr vinnuframlagi eða að minnka ábyrgð starfsfólks. Hann snýst um að vernda þann tíma sem samfélagið hefur um áratugaskeið viðurkennt að eigi að vera frátekinn fyrir hvíld og einkalíf. Rétturinn til að aftengjast eru ekki sérstök forréttindi heldur mikilvægur réttur til að njóta þess til fulls að vera í fríi. Réttur sem eldri kynslóðir þurftu að berjast fyrir. Þetta ætti einnig að vera kappsmál stjórnenda því góður starfskraftur er ánægður og vel hvíldur starfsmaður sem býr við gott jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnsýsla Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar