Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir og Sæþór Þorbergsson skrifa 15. júlí 2026 09:00 Í Stykkishólmi hefur í áratugi verið heimahöfn ferjunnar Baldurs. Ferjan er til að vera í siglingum yfir Breiðafjörð daglega allan ársins hring. Á veturna niðurgreiðir ríkið í gegnum Vegagerðina þessar mikilvægu samgöngur. Á sumrin er ekki þörf á niðurgreiðslu enda umferð mikil og innkoma dugar fyrir kostnaði. Þetta reynist því vera hagkvæmur ferðamáti mörgum þeirra sem eiga erindi yfir fjörðinn. Ríkið leggur áherslu á að þessar siglingar haldist með því að gera þær að skilyrði að sumri til þó ekki þurfi meðlag. Svona hefur þetta verið frá því löngu áður en ferðamenn fóru að streyma til landsins í þeim mæli sem nú er. Stykkishólmur hefur m.a. byggst upp sem ferðamannabær vegna ferjunnar. Einstaklingar og félög hafa fjárfest sínu eigin fé í gistirekstri, veitingahúsum, afþreyingu og öðru í ferðaþjónustu til að taka á móti þessum ferðamönnum og vera hluti þeirrar mikilvægu atvinnugreinar Ferðaþjónusta í Stykkishólmi hefur í mörg ár markaðssett sína þjónustu til erlendra og innlendra ferðamanna. Mikilvægi þess að dreifa ferðamönnum sem víðast er áskorun þegar þarf að sannfæra ferðamenn um að það sé fleira að sjá en Reykjavík og Suðurland. Það er lykkja að fara út af hringveginum. Þetta höfum við samt gert m.a. með hvatningu stjórnvalda. Við höfum séð tækifæri í þessu og að mörgu leyti gengið vel. Stykkishólmur tekur vel á móti sínum gestum. Á liðnum vetri eins og undanfarin ár höfum við markaðssett áfangastaðinn Stykkishólm og okkar góðu þjónustu og tekið við bókunum. Ferðaplan margra gerir ráð fyrir að fara um hlað hjá okkur og stór hluti þeirra dvelur hjá okkur annað hvort fyrir eða eftir siglingu yfir Breiðafjörð með Baldri. Nú bregður svo við að innviðaráðherra ákveður að kippa fótunum undan rekstri okkar fyrirtækja með að senda Baldur til Vestmannaeyja. Rökin þau að Eyjamenn þurfi meira á Baldri að halda en við. Vestmannaeyjar eru reyndar með ferju fyrir en hún nær ekki að flytja alla þá ferðamenn sem vilja komast til Eyja. Í fyrstu átti þetta að standa í nokkra daga en útlit er fyrir að það verði hátt í tveir mánuðir þegar upp verður staðið. Á þeim vikum sem liðnar eru frá því Vegagerðin tók ferjuna og sendi til Vestmannaeyja, hefur samdráttur ferðaþjónustufyrirtækja í Stykkishólmi verið allt að 30%. Tjónið er af ýmsum ástæðum. Talsvert minni umferð ferðamanna er í bænum. Ferðamenn frétta af breytingu á ferjusiglingum og ákveða að koma ekki og afbóka það sem þeir voru áður búnir að panta. Nokkur misbrestur virðist vera á að þeir sem áttu bókað með ferjunni fái upplýsingar um að hún sigli ekki. Þeir eiga því pantað, koma í Stykkishólm og eru hundfúlir yfir að ferðaplani sé breytt án vitneskju þeirra. Það bitnar svo á ánægju þeirra með það sem þó er boðið upp á. Þá er ótalið að með þessu eru stjórnvöld að valda okkur skaða til lengri tíma en ef ekki er hægt að treysta því að ferjan sigli þá fellur sá möguleiki úr myndinni að fara um Snæfellsnes. Breyting á núverandi ferðaplönum er beinir viðskiptum annað. Það er ekki aðeins að við verðum af tekjum í sumar vegna þessarar ákvörðunar heldur sitjum við uppi með kostnað sem við verðum sjálf að bera. Ráðning starfsfólks, kaup á aðföngum og markaðs- og sölukostnaður miðaðist við að þetta sumar yrði á fullum afköstum eins og öll þau fyrri. Við sitjum uppi með þennan kostnað óbættan. Innviðaráðherra og Vegagerðin hafa ekki séð ástæðu til að milda þetta tjón okkar með nokkrum hætti. Það hefði ýmislegt mátt gera til að koma til móts við okkur eða okkar viðskiptavini. Það hefði mátt gera veginn um Skógarströnd betri með að hefla hann oftar. Það hefði mátt vera með í að upplýsa ferðamenn betur um þessa breytingu. Ýmsar aðrar mótvægisaðgerðir hefðu komið til greina svo við sætum ekki ein uppi með kostnaðinn. Að láta lítil fyrirtæki á Snæfellsnesi og Vestfjörðum sitja upp með kostnað af því að fleiri komist leiðar sinnar til Vestmannaeyja er ósanngjarnt. Höfundar reka ferðaþjónustufyrirtæki í Stykkishólmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferjan Baldur Stykkishólmur Ferðaþjónusta Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Sjá meira