Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir, Kristín Skjaldardóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifa 13. júlí 2026 17:31 Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs var settur á laggirnar að frumkvæði mennta- og barnamálaráðuneytisins til að stuðla að öruggu og uppbyggilegu umhverfi fyrir alla sem taka þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Að undanförnu hefur samskiptaráðgjafi í auknum mæli fengið til umfjöllunar mál sem varða hatursorðræðu og aðra niðrandi orðræðu. Slík orðræða grefur undan virðingu, góðum samskiptum og því jákvæða andrúmslofti sem við viljum skapa í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Öruggt umhverfi er ein mikilvægasta forsenda þess að börn og ungmenni geti dafnað í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Í íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur á undanförnum árum verið unnið markvisst að því að efla verklag, fræðslu og viðbrögð þegar upp koma mál sem varða öryggi og velferð barna. Sú vinna er mikilvæg og hefur skilað árangri. En reglur og verklag ein og sér duga ekki til. Það skiptir ekki síður máli hvernig við tölum saman, leysum ágreining, sýnum hvert öðru virðingu og hvernig við bregðumst við þegar einhver er niðurlægður eða skilinn út undan. Það eru dagleg samskipti sem móta upplifun barna og ungmenna af því hvort þau séu velkomin, metin og örugg í starfinu. Þess vegna skipta orð máli. Hatursorðræða er ekki aðeins vandamál á samfélagsmiðlum eða í samfélagsumræðunni. Hún getur einnig sett mark sitt á samskipti og andrúmsloft í íþrótta og æskulýðsstarfi. Þegar niðrandi ummæli, fordómar eða persónuárásir eru afgreidd sem „grín“, „pirringur“ eða „bara skoðun“ færast mörkin smám saman. Það sem áður þótti óásættanlegt verður eðlilegra og virðing fyrir öðrum minnkar. Þetta snýst ekki um að fólk megi ekki vera ósammála. Þvert á móti eru ólíkar skoðanir og málefnaleg umræða eðlilegur hluti af öllu samstarfi. En það er grundvallarmunur á því að ræða hugmyndir af virðingu og því að gera lítið úr einstaklingnum. Þegar orð eru notuð til að smána, útiloka eða vekja ótta hafa þau áhrif sem ná langt út fyrir samtalið sjálft. Börn og ungmenni læra ekki aðeins af því sem við kennum þeim heldur einnig af því sem þau sjá og heyra. Þau fylgjast með því hvernig fullorðnir tala um aðra, hvernig við bregðumst við þegar einhver sýnir öðrum óvirðingu og hvort við höfum kjark til að segja: „Þetta er ekki í lagi.“ Fullorðnir eru mikilvægar fyrirmyndir í því hvernig börn og ungmenni læra að koma fram við aðra. Í íþrótta- og æskulýðsstarfi læra börn og ungmenni meira en tækni, leikskipulag og hvernig ná megi árangri. Þar fá þau einnig tækifæri til að læra mikilvægi virðingar, ábyrgðar, samvinnu og hvernig við komum fram hvert við annað þegar við erum ósammála. Þess vegna er góð samskiptamenning ein af mikilvægustu forsendum jákvæðs andrúmslofts þar sem börn og ungmenni geta notið sín í öruggu umhverfi. Þar liggur ábyrgð okkar allra. Þjálfarar, foreldrar, stjórnendur, sjálfboðaliðar, iðkendur og áhorfendur eiga öll þátt í að móta þá menningu sem ríkir í starfinu. Hvert orð sem við veljum getur annaðhvort styrkt þá menningu eða grafið undan henni. Ef við viljum að börn og ungmenni upplifi að þau séu velkomin, örugg og metin að verðleikum verðum við að gera meira en að setja reglur. Við þurfum að rækta samskiptamenningu sem byggir á virðingu, ábyrgð og því að fólk þori að grípa inn í þegar orð eða hegðun valda skaða. Menning mótast ekki af því sem við segjum að skipti máli, heldur af því sem við leyfum að viðgangast. Þess vegna er hatursorðræða ekki aðeins spurning um orð. Hún er spurning um þá menningu sem við veljum að skapa. Þegar við bregðumst við niðrandi orðræðu er markmiðið ekki að skamma eða þagga niður í fólki. Markmiðið er standa vörð um samskiptamenningu sem gerir börnum og ungmennum kleift að upplifa öryggi, virðingu og raunverulega þátttöku.“ Hatursorðræða byrjar með orðum. Það gerir virðing líka. Valið er okkar. Höfundar starfa hjá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Þóra er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, Kristín er félagsráðgjafi og handleiðari og Eygló er sálfræðingur með íþróttasálfræði sem undirgrein. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar