Sport

Nefndi nýja dýra­tegund eftir mark­verðinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi sækir hér að Vozinha markverði í dramatískum leik Argentínu og Grænhöfðaeyja í 32 liða úrslitunum á HM.
Lionel Messi sækir hér að Vozinha markverði í dramatískum leik Argentínu og Grænhöfðaeyja í 32 liða úrslitunum á HM. Getty/Wu Zhizhao

Sæsnigill hefur verið nefndur Aldisa vozinha til heiðurs markverði Grænhöfðaeyja sem sló svo eftirminnilega í gegn á heimsmeistaramótinu í fótbolta.

Spænski líffræðingurinn og fótboltaáhugamaðurinn Jesus Ortea hefur nefnt nýfundna tegund sæsnigils eftir Vozinha, markverði Grænhöfðaeyja, sem kom knattspyrnuáhugafólki mikið á óvart með því að verja allar marktilraunir Spánverja í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu.

Ortea uppgötvaði litla, skærrauða lindýrið, sem nú heitir Aldisa vozinha, í Karíbahafi og tímasetti tilkynningu sína þannig að hún félli saman við heimsmeistaramótið.

„Við höfum valið nafnið vozinha til heiðurs Vozinha. Hann lék áberandi hlutverk í fyrsta leik lands síns á heimsmeistaramótinu gegn Spáni,“ sagði Ortea í grein sinni.

„Litir tegundarinnar eru hugsaðir sem virðingarvottur við það afrek.“

Hinn fertugi Vozinha varð ein af stjörnum mótsins og hjálpaði landi sínu að komast í 32-liða úrslit, þar sem hann átti annan stórleik í dramatísku tapi gegn heimsmeisturum Argentínu í framlengingu.

Vozinha var nánast óþekktur fyrir mótið en er nú kominn með yfir 28 milljón fylgjendur á samfélagsmiðlum.

Ortea er prófessor emeritus við háskólann í Oviedo og hefur unnið mikið í hafinu í kringum Grænhöfðaeyjaklasann og árið 2023 veitti eyríkið honum heiðursverðlaun þjóðar sinnar.

Ástríða hins 75 ára gamla líffræðings fyrir fótbolta hefur áður komið fram í nafngiftum sjávarlífvera eftir Keylor Navas, fyrrverandi markverði Kosta Ríka og Real Madrid, og Quini, framherja Spánar og Sporting Gijon á áttunda og níunda áratugnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×