Joanna Pettet er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. júlí 2026 17:01 Leikkonan Joanna Pettet er látin. Getty Bresk-kanadíska leikkonan Joanna Pettet, sem er þekktust fyrir leik sinn í Bond-paródíunni Casino Royale frá 1967, er látin, 83 ára að aldri. Pettet lést 31 ári, upp á dag, eftir að sonur hennar, Damien Zachary Cord, lést úr ofskömmtun heróíns.
Pam DuBois, vinkona Pettet og fyrrverandi umboðsmaður hennar, greindi bransamiðlinum The Hollywood Reporter frá því að Pettet hefði dáið þriðjudaginn 7. júlí á sjúkrahúsi í Kaliforníu. „Við elskuðum öll Jo. En það var ein manneskja sem elskaði hana mest og í gær, á 31 árs ártíð hans, fór Damien Zach með móður sína upp til himna og þar mun hún dvelja með honum til eilífðarnóna,“ skrifaði DuBois í andlátstilkynningunni. Pettet fæddist í Lundúnum árið 1942 og ólst upp í Montreal eftir að faðir hennar lést í Seinni heimsstyrjöldinni. Hún flutti sextán ára gömul til New York til að læra leiklist, hóf að leika á Broadway í byrjun sjöunda áratugarins og færði sig yfir á stóra skjáinn þegar hún lék í The Group (1966) í leikstjórn Sidney Lumet. Ári eftir frumraunina lék hún í þremur myndum: The Night of the Generals, Robbery og Casino Royale. Sú síðastnefnda er langþekktust en um er að ræða spæjaraparódíu þar sem David Niven lék James Bond en Pettet var þar Mata Bond, dóttur spæjarans og Mötu Hari. Þann 8. ágúst 1969 borðaði Pettet hádegisverð með leikkonunni Sharon Tate aðeins nokkrum klukkustundum áður en Tate og fjórir aðrir voru myrtir af Manson-fjölskyldunni. Pettet bregður fyrir í Once Upon a Time...in Hollywood (2019), mynd Tarantino um atburðinn, og er þar leikin af Rumer Willis. Pettet lék í fjölda sjónvarpsþátta á áttunda og níunda áratugnum, þar á meðal Knight Rider, Charlie's Angels, Murder, She Wrote og The Fall Guy. Pettet hætti að leika í byrjun tíunda áratugarins og var hryllingsmyndin Terror in Paradise (1991) síðasta myndin sem hún lék í. Pettet var gift leikaranum Alex Cord frá 1968 til 1989 og átti með honum einn son, Damien Zachary Cord, sem lést árið 1995
Bíó og sjónvarp Hollywood Bretland Andlát Kanada Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Lífið Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fleiri fréttir Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Sjá meira