Sport

Ís­lands­met í hættu í Breið­holti um helgina

Sindri Sverrisson skrifar
HM-fararnir Júlía Kristín Jóhannesdóttir og Christina Alba Hafliðadóttir keppa í Breiðholti um helgina.
HM-fararnir Júlía Kristín Jóhannesdóttir og Christina Alba Hafliðadóttir keppa í Breiðholti um helgina. Samsett/@ricewtfxc/FRÍ

Íslandsmethafar og ólympíufarar eru í hópi fremsta frjálsíþróttafólks landsins sem keppir í bikarkeppni FRÍ um helgina, á ÍR-vellinum í Skógarseli.

Sex lið taka þátt í keppninni í ár sem að vanda virkar þannig að lið senda fulltrúa í hverja grein sem svo safna stigum fyrir sitt lið með árangri sínum.

Í fyrra urðu FH-ingar bikarmeistarar í heildarstigakeppninni, sem og í stigakeppni kvenna, en það var sameinað lið Fjölnis og UMSS sem varð bikarmeistari karla.

ÍR sendir tvö lið til keppni í ár en einnig keppa Ármann, Breiðablik, FH og Fjölnir. Keppni stendur yfir frá 13:30 til 16:30 á morgun, og frá 13 til 16 á sunnudaginn.

Frjálsíþróttasambandið hefur tíundað það helsta sem gæti verið í vændum á mótinu og má sjá það hér að neðan.

Laugardagurinn 11. júlí:

– Bikarkeppnin hefst á stangarstökki kvenna 13:30. Þar á Hanna María Petersdóttir (Fjölni) besta árangurinn og hefur stokkið hæst allra í ár 3,30 m.

– Í 1500 metra hlaupi kvenna má búast við spennandi keppni en Embla Margrét Hreimsdóttir (FH) hefur hlaupið hraðast keppanda en Helga Lilja Maack (ÍR) er einnig á mikilli siglingu þessa dagana.

– Í langstökki karla á Þorleifur Einar Leifsson (Breiðablik) besta árangurinn í ár en Gylfi Ingvar Gylfason (FH) kemur þar skammt á eftir.

– í kúluvarpi karla er það Sigursteinn Ásgeirsson (ÍR) sem er sigurstranglegastur en hann hefur kastað lengst í ár. En hinn bráðefnilegi Benedikt Gunnar Jónsson (ÍR B) er líklegur til afreka.

– Þar næst er kringlukast kvenna þar sem landsliðskonan og Íslandsmethafinn Hera Christensen (FH) mætir til leiks og gerir atlögu að Íslandsmetinu.

– Í 1500 metra hlaupi karla verður spennandi keppni um titilinn en Hilmar Ingi Bernharðsson (ÍR) á besta tíma þátttakenda í ár. Fjölnir Brynjarsson (FH) á þó betri persónulegan árangur og því verður væntanlega hart barist.

– Það verður æsispennandi 100 metra hlaup kvenna þar sem Eir Chang Hlésdóttir (ÍR) og Christina Alba Marcus Hafliðadóttir (Fjölni) berjast um titilinn og Íslandsmetið gæti verið í hættu.

– Í 100 metra hlaupi karla mætir Kristófer Þorgrímsson (FH) til leiks en hann á hraðasta tíma ársins 10,70 sek. – Í 100 metra grindahlaupi kvenna mætir Íslandsmethafinn Júlía Kristín Jóhannesdóttir (Breiðablik) til leiks en hún hefur verið á mikilli siglingu í ár.

– Í 110 metra grindahlaupi karla er það Þorleifur Einar Leifsson (Breiðablik) sem á besta tíma keppanda í ár.

– Birna Kristín Kristjánsdóttir (FH) er að snúa til baka eftir meiðsli og verður spennandi að sjá hvað hún nær að stökkva langt í langstökki kvenna.

– Í kringlukasti karla er það Íslandsmethafinn Guðni Valur Guðnason (ÍR) sem hefur kastað lengst allra í ár, 62.48.

– Í 400 metra hlaupi kvenna má búast við jafnri keppni á milli Ísoldar Sævarsdóttur (FH) og Ingibjargar Sigurðardóttur (ÍR).

– Sömu sögu má segja um 400 metra hlaup karla þar sem sekúndubrot gætu skilið á milli keppanda.

– Kjartan Óli Bjarnason (Fjölni) á besta tíma keppanda í ár en hann hljóp á 47,44 fyrr í sumar sem var jafnframt Íslandsmet u20.

– Í hástökki karla má búast við spennandi keppni en Birnir Vagn Finnsson (FH) á besta persónulegan árangur keppanda.

– Í spjótkasti kvenna er það Arndís Diljá Óskarsdóttir (FH) sem er líkleg að verja bikarmeistaratitilinn en hún á lengsta kast ársins.

– Í 5000 metra hlaupi kvenna er það Íris Dóra Snorradóttir (FH) sem er líkleg að landa titlinum en hún á besta tíma þátttakenda í ár. Í 5000 metra hlaupi karla má búast við harðri keppni á milli Sindra Karls Sigurjónssonar (ÍR) og Stefáns Kára Smárasonar (FH) en þeir eiga 2. og 3. hraðasta tíma ársins í vegalengdinni.

  • 13:30 Stangarstökk kvenna
  • 14:00 1500 m kvenna
  • 14:00 Langstökk karla
  • 14:00 Kúluvarp karla
  • 14:00 Kringlukast kvenna
  • 14:15 1500 m karla
  • 14:30 100 m kvenna
  • 14:40 100 m karla
  • 15:00 100 m grindahlaup kvenna
  • 15:15 110 m grindahlaup karla
  • 15:15 Langstökk kvenna
  • 15:15 Kringlukast karla
  • 15:30 400 m kvenna
  • 15:30 Hástökk karla
  • 15:40 400 m karla
  • 15:55 5000 m kvenna
  • 16:00 Kringlukast kvenna
  • 16:15 5000 m karla

Sunnudagurinn 12. júlí:

– Seinni dagurinn hefst á 400 metra grindahlaupi kvenna en þar á Ísold Sævarsdóttir (FH) besta árangurinn. – Í stangarstökki karla er það Magnús Elías Harvard (Ármanni) sem á bestan árangur keppenda í ár 4,72 m en það er jafnframt Íslandsmet u20.

– Í þrístökki kvenna mætir Íslandsmethafinn Irma Gunnarsdóttir (FH) til leiks.

– Íslandsmethafinn og Ólympíufarinn Erna Sóley Gunnarsdóttir (ÍR) keppir í kúluvarpi kvenna.

– Enn annar Íslandsmethafi mætir til leiks þegar Hilmar Örn Jónsson (FH) keppir í sleggjukasti karla.

– Í 400 metra grindahlaupi karla er það Ívar Kristinn Jasonarson (ÍR) sem á besta tímann í ár en Pétur Óli Ágústsson (Fjölni) hefur einnig verið á góðri siglingu og bætt sig mikið.

– Í 800 metra hlaupi kvenna er það Helga Lilja Maack (ÍR) sem á besta tíma keppanda í ár.

– Leó Örn Þórarinsson (FH) á bestan árangur keppenda í 800 metra hlaupi karla.

– Í 200 metra hlaupi kvenna er líklegust til sigurs Íslandsmethafinn Eir Chang Hlésdóttir (ÍR).

– Í 200 metra hlaupi karla má búast við harðri keppni en Kristófer Þorgrímsson (FH) er með besta tíma þátttakenda.

– Í sleggjukasti kvenna má búast við svakalegu einvígi en þær Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir (ÍR) og Elísbet Rut Rúnarsdóttir (ÍR B) mæta til leiks. Þær hafa skipst á að slá Íslandsmetið síðustu misseri og hver veit nema metið falli enn og aftur á heimavelli þeirra.

– Í 3000 metra hindrunarhlaupi kvenna á Helga Guðný Elíasdóttir (ÍR) besta tíma þátttakenda.

– Guðjón Dunbar Diaquoi Þorsteinsson (Fjölni) er meðal þátttakenda í þrístökki karla en hann á bestan árangur þátttakenda og lengsta stökk ársins í ár 14,64 m.

– Í 3000 metra hindrunarhlaupi karla á Arnar Pétursson (Breiðablik) besta tíma þátttakenda.

– Helga Þóra Sigurjónsdóttir (FH) hefur stokkið hæst þátttakenda í ár í hástökki kvenna.

– Sindri Hrafn Guðmundsson (FH) er mættur til landsins og stefnir á að verja titilinn í spjótkasti karla en hann á bestan árangur í ár í greininni.

– Síðustu greinar mótsins eru svo 1000 metra boðhlaup karla og kvenna.

  • 13:00 400 m grindahlaup kvenna
  • 13:00 Stangarstökk karla
  • 13:00 Þrístökk kvenna
  • 13:00 Kúluvarp kvenna
  • 13:00 Sleggjukast karla
  • 13:15 400 m grindahlaup karla
  • 13:30 800 m kvenna
  • 13:40 800 m karla
  • 14:00 200 m kvenna
  • 14:10 200 m karla
  • 14:15 Sleggjukast kvenna
  • 14:30 3000 m hindrunarhlaup kvenna
  • 14:30 Þrístökk karla
  • 14:50 3000 m hindrunarhlaup karla
  • 14:50 Hástökk kvenna
  • 15:15 Spjótkast karla
  • 15:30 1000 m boðhlaup kvenna
  • 15:45 1000 m boðhlaup karla



Fleiri fréttir

Sjá meira


×