Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Jón Þór Stefánsson skrifar 8. júlí 2026 19:21 Jón Ingvar Pálsson, fyrrverandi forstjóri Innheimtustofnunar. Vísir Innheimtustofnun Sveitarfélaga, eða IHS, var í dag sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Jóns Ingvars Pálssonar, fyrrverandi forstjóra hennar, sem hljóðuðu upp á 91 milljón krónur.
Jón Ingvar hóf störf hjá IHS, stofnunnar sem sér um innheimtu meðlaga, árið 2000, fyrst sem lögmaður, en var ráðinn forstjóri hennar níu árum síðar. Því starfi sinnti hann um rúmlega eins áratugarskeið, en í desember 2021 var hann sendur í leyfi og í apríl árið eftir var honum sagt upp. Uppsögnin var vegna alvarlegra brota í starfi og vanefnda á ráðningarsamningi vegna trúnaðarrofs. Jón Ingvar vildi meina að uppsögnin hefði verið ólögmæt, og höfðaði þess vegna málið. Það sem Jón Ingvar hafði gert var að fela tveimur félögum í eigu undirmanns síns, Braga R. Axelssonar, þáverandi forstöðumanni IHS á Ísafirði, að sinna lögbundnu hlutverki stofnunarinnar. Það gerði hann með samningum við Officio ehf., sem heitir í dag Formáli lögmenn, og við A&T Ísland, sem nú heitir Formáli, árið 2020. Það gerði Jón Ingvar án heimildar stjórnar stofnunarinnar, en hún fékk ekki að vita af samningsgerðinni fyrr en nokkrum mánuðum síðar, eftir að fjölmiðlar höfðu fjallað um málið. Í dómnum kemur fram að ekkert liggi fyrir í málinu um að aðrir en starfsmenn IHS á Ísafirði hafi unnið að þeim innheimtuverkefnum sem einkahlutafélögunum voru falin. Jón Ingvar staðhæfði að það hafi þeir gert að loknum vinnudegi sínum hjá stofnunni og um helgar. Það hafi þeir gert sem hlutastarfsmenn Officio. Með því að láta eina og sama manninn, Braga R., sitja báðum megin borðsins, bæði hjá félögunum tveimur og hjá IHS þótti Jón Ingvar, að mati héraðsdóms, hafa brugðist alvarlega stjórnunar- og trúnaðarskyldum sínum. Í dómnum segir að Jón Ingvar hafi brotið „svo alvarlega gegn starfsskyldum sínum“ og rofið trúnað þannig að ljóst væri að þar væri um gróft brot að ræða. Því hafi stjórninni verið heimilt að víkja honum úr starfi án fyrirvara. Þar af leiðandi var IHS sýknuð af kröfum Jóns Inga og honum gert að greiða stofnunni eina og hálfa milljón í málskostnað.
Rannsókn á Innheimtustofnun sveitarfélaga Dómsmál Tengdar fréttir Lögmannsstofa, grunuð um misferli, var helsti bakhjarl handboltaliðs á lygilegri uppleið Grunur leikur á um að Innheimtustofnun hafi greitt félagi í eigu forstöðumanns stofnunarinnar á Ísafirði í kringum fjörutíu milljónir króna í þóknanir vegna þjónustu, sem átti ekki að útvista yfirleitt. Félagið er síðan helsti styrktaraðili handknattleiksdeildar Harðar, sem hefur vaxið ævintýralega á örfáum árum. 6. maí 2022 20:01 Svartur kafli í úttekt varpar ljósi á háttsemi stjórnenda Innheimtustofnunar Ríkisendurskoðun telur að þáverandi stjórnendur Innheimtustofnunar sveitarfélaga hafi í mörgum tilfellum reynt að leyna upplýsingum og gögnum um rekstur stofnunarinnar frá Ríkisendurskoðun. Reynt hafi verið að afvegaleiða úttekt á starfsemi stofnunarinnar. 21. október 2022 15:04 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Lögmannsstofa, grunuð um misferli, var helsti bakhjarl handboltaliðs á lygilegri uppleið Grunur leikur á um að Innheimtustofnun hafi greitt félagi í eigu forstöðumanns stofnunarinnar á Ísafirði í kringum fjörutíu milljónir króna í þóknanir vegna þjónustu, sem átti ekki að útvista yfirleitt. Félagið er síðan helsti styrktaraðili handknattleiksdeildar Harðar, sem hefur vaxið ævintýralega á örfáum árum. 6. maí 2022 20:01
Svartur kafli í úttekt varpar ljósi á háttsemi stjórnenda Innheimtustofnunar Ríkisendurskoðun telur að þáverandi stjórnendur Innheimtustofnunar sveitarfélaga hafi í mörgum tilfellum reynt að leyna upplýsingum og gögnum um rekstur stofnunarinnar frá Ríkisendurskoðun. Reynt hafi verið að afvegaleiða úttekt á starfsemi stofnunarinnar. 21. október 2022 15:04