Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Kjartan Kjartansson skrifar 7. júlí 2026 12:23 Le Pen í dómshúsinu í París þar sem Marie Antoinette var fangelsuð í frönsku byltingunni og Philippe Pétain, leiðtogi Vichy-stjórnarinnar í síðari heimsstyrjöldinni, var dæmdur til dauða fyrir landráð. Vísir/EPA Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Marine Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en mildaði verulega bann sem hún hlaut við því að bjóða sig fram. Hún getur tæknilega boðið sig fram til forseta á næsta ári en óljóst er hvort hún geri það eftir niðurstöðuna.
Le Pen var dæmd í þriggja ára fangelsi og til þess að greiða 100.000 evrur í sekt fyrir sinn þátt í misferli með fjármuni Evrópuþingsins. Hún verður í stofufangelsi með ökklaband í eitt ár en tvö ár af fangelsisdómnum eru skilorðsbundin. Stóra málið var hins vegar hvort dómstóllinn sneri við banni við því að hún byði sig fram til opinbers embættis í fimm ár sem neðri dómstóll kvað á um í fyrra. Hefði bannið staðið óhaggað gæti Le Pen ekki boðið sig fram til forseta á næsta ári. Niðurstaðan er nokkuð tvíræð. Áfrýjunardómstóllinn stytti bannið í tæplega fjögur ár og skilorðsbatt þrjátíu mánuði af því. Samkvæmt því er Le Pen ekki óheimilt að bjóða sig fram í forsetakosningum á næsta ári. Le Pen hafði hins vegar áður sagt að hún ætlaði ekki í forsetaframboð með ökklaband. Ekki er reiknað með því að Le Pen eða Þjóðfylking hennar tjái sig um dóminn fyrr en í sjónvarpsviðtali í kvöld. Á þriðja tug liðsmanna Þjóðfylkingarinnar voru dæmdir í málinu sem snerist um greiðslur sem flokkurinn fékk til þess að fjármagna starfsemi sína á Evrópuþinginu. Í staðinn notaði flokkurinn féð ólöglega til þess að reka starfsemi sína í Frakklandi.
Frakkland Erlend sakamál Evrópusambandið Kosningar í Frakklandi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira