Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar 8. júlí 2026 08:00 Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, upplýsti í kvöldfréttum nýverið að hann ætlaði að fylgjast með almyrkvanum í ágúst á pallinum heima. Aðdáun Sævars á náttúrufyrirbærinu er flestum kunn. Hann hefur helgað síðustu þremur árum í að vekja athygli á því hvað er í vændum, haldið ótal fyrirlestra fyrir bæði skóla og fyrirtæki og er með veglega vefsíðu, solmyrkvi2026.is. Almyrkvinn 12. ágúst er sögulegur. Þetta er í fyrsta skipti í meira en hálfa öld sem hann sést á Íslandi. Síðast gerðist það við suðurströnd landsins árið 1954. Skúli Jón Sigurðarson, sem þá var sextán ára í Landeyjum, rifjaði nýverið upp upplifun sína í samtali við Morgunblaðið og lýsti því hvernig „kliðurinn af fuglakvakinu þagnaði - og stjörnur blikuðu á „næturhimninum“.“ Það eru því mikil forréttindi fyrir íbúa á Vesturlandi og suðvesturhorninu, sem verða innan almyrkvaslóðarinnar, að geta fylgst með náttúruundrinu heiman frá sér. Og þótt himininn hafi verið heiður í Landeyjum fyrir 72 árum er skýjaður almyrkvi mögnuð upplifun. 12. ágúst á því að geta orðið sögulegur og eftirminnilegur fyrir sem flesta. Mikill undirbúningur hefur farið fram á þeim stöðum þar sem reiknað er með flestu fólki. Lögregluembætti á almyrkvaslóðinni verða með töluverðan viðbúnað, Landhelgisgæslan stefnir á að vera með tvær þyrlur til taks auk þess sem varðskipið Þór verður staðsett fyrir utan Vesturland. Búast má við töluverðum umferðarþunga í aðdraganda almyrkvans og eftir hann. Viðbúið er að mikið álag verði á innviði þessa daga og fólk á almyrkvaslóð getur gert sitt til að draga úr álaginu með því að njóta almyrkvans í sínu nærumhverfi. Þau sem hyggja á ferðalög þurfa að gera ráð fyrir lengri ferðatíma og að ákveðnum stöðum verði lokað þegar tilteknum þolmörkum er náð. Þau verða að gæta þess að vera með vatn, nauðsynleg lyf og mat og passa upp á að nægt eldsneyti sé á bílnum eða hann nægilega hlaðinn. Síðast en ekki síst þurfa ökumenn að hafa hugann við aksturinn allan tímann. Allir sem ætla að fylgjast með almyrkvanum ættu síðan að kynna sér hvernig þeir vernda augnheilsu sína og nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu. Landlæknisembættið gaf nýverið út leiðbeiningar sem finna má á upplýsingagáttinni island.is/almyrkvi2026. Höfundur er formaður stýrihóps Stjórnarráðsins vegna almyrkva. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar