Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar 3. júlí 2026 16:30 RÚV greinir frá því að ríkið greiði aðeins fyrir þjónustu við fimm reykvísk börn með fjölþættan vanda, en 57 börn falli utan nýrrar skilgreiningar ríkisins. Þar með sitji Reykjavíkurborg uppi með mikinn kostnað vegna þjónustu sem börnin þurfa á að halda. En þetta mál snýst ekki fyrst og fremst um það hver „situr uppi með kostnaðinn“. Það snýst um börn sem þurfa þjónustu. Það snýst um fjölskyldur sem þurfa stuðning. Það snýst um lögbundin réttindi sem eiga ekki að hverfa í ágreiningi ríkis og sveitarfélaga. Þessi staða var fyrirséð. Við höfum ítrekað varað við því að ef ábyrgðin væri óskýr, fjármögnunin ótrygg og kerfið byggt í kringum stofnanir en ekki börnin sjálf, myndi þetta gerast. Ríki og sveitarfélög myndu vísa hvert á annað og börnin yrðu látin bíða. Það er óboðlegt. Í stað þess að einfalda kerfið, skýra ábyrgð og tryggja að þjónustan fylgi barninu, er enn einu sinni farið í skilgreiningar, túlkanir og kostnaðardeilur. Á meðan bera börn, ungmenni, fatlað fólk og fjölskyldur þeirra fórnarkostnaðinn. Fórnarkostnaðurinn er ekki lína í fjárhagsáætlun. Hann er líf barna. Framtíð ungmenna. Öryggi fjölskyldna. Og traust okkar til samfélagsins. Ríki og sveitarfélög verða að hætta þessum leik. Börn og fatlað fólk eiga ekki að þurfa að bíða eftir nauðsynlegri þjónustu vegna þess að ríki og sveitarfélög getur ekki ákveðið hjá hvorum reikningurinn á að lenda. Réttindi barna eru ekki samningsatriði. Þjónusta við fatlað fólk er ekki greiði. Og samfélag sem lætur börn með mestar stuðningsþarfir bíða á meðan stjórnsýslan rífst um ábyrgð, það samfélag þarf að fara að horfast í augu við sjálft sig. Höfundur er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
RÚV greinir frá því að ríkið greiði aðeins fyrir þjónustu við fimm reykvísk börn með fjölþættan vanda, en 57 börn falli utan nýrrar skilgreiningar ríkisins. Þar með sitji Reykjavíkurborg uppi með mikinn kostnað vegna þjónustu sem börnin þurfa á að halda. En þetta mál snýst ekki fyrst og fremst um það hver „situr uppi með kostnaðinn“. Það snýst um börn sem þurfa þjónustu. Það snýst um fjölskyldur sem þurfa stuðning. Það snýst um lögbundin réttindi sem eiga ekki að hverfa í ágreiningi ríkis og sveitarfélaga. Þessi staða var fyrirséð. Við höfum ítrekað varað við því að ef ábyrgðin væri óskýr, fjármögnunin ótrygg og kerfið byggt í kringum stofnanir en ekki börnin sjálf, myndi þetta gerast. Ríki og sveitarfélög myndu vísa hvert á annað og börnin yrðu látin bíða. Það er óboðlegt. Í stað þess að einfalda kerfið, skýra ábyrgð og tryggja að þjónustan fylgi barninu, er enn einu sinni farið í skilgreiningar, túlkanir og kostnaðardeilur. Á meðan bera börn, ungmenni, fatlað fólk og fjölskyldur þeirra fórnarkostnaðinn. Fórnarkostnaðurinn er ekki lína í fjárhagsáætlun. Hann er líf barna. Framtíð ungmenna. Öryggi fjölskyldna. Og traust okkar til samfélagsins. Ríki og sveitarfélög verða að hætta þessum leik. Börn og fatlað fólk eiga ekki að þurfa að bíða eftir nauðsynlegri þjónustu vegna þess að ríki og sveitarfélög getur ekki ákveðið hjá hvorum reikningurinn á að lenda. Réttindi barna eru ekki samningsatriði. Þjónusta við fatlað fólk er ekki greiði. Og samfélag sem lætur börn með mestar stuðningsþarfir bíða á meðan stjórnsýslan rífst um ábyrgð, það samfélag þarf að fara að horfast í augu við sjálft sig. Höfundur er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar