Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 4. júlí 2026 09:30 Þróun ríkisfjármála er flókið viðfangsefni hér sem annars staðar. Flestar þjóðir glíma við svipaðar áskoranir í efnahagsmálum og við, þótt blæbrigðamunur sé vissulega á. Hagkerfi okkar er kraftmikið en lítið, viðkvæmt fyrir utanaðkomandi áföllum og okkar eigin hagstjórnarmistökum. Verðbólga er þannig þrálátt vandamál, en lækkun hennar er vel viðráðanleg áskorun. Til að árangur náist er þó ekki nóg að halda ræður um aðhald, hver sem á í hlut. Það þarf að sýna í verki að ríkið ætli að spila með öðrum hagaðilum. Á meðan svo er skiptir e.t.v. ögn minna máli hver aðgerðin nákvæmlega er. Veruleg aukning ríkisútgjalda á viðkvæmum tíma Ríkisútgjöld jukust verulega milli áranna 2025 og 2026. Heildargjöld ríkissjóðs jukust um 9% að nafnvirði og um 5% að raunvirði. Hluti hækkunarinnar skýrist af fjármagnskostnaði, verðlagsforsendum, launaþróun og lögbundnum skuldbindingum, en eftir stendur að útgjaldavöxturinn er hættulega mikill í ljósi þess að þjóðin býr við of hátt vaxtastig og þrálátari verðbólgu en ætlað var. Þetta bentu þó flestir á síðastliðið haust þegar fjárlagafrumvarp ársins 2026 var til umræðu. Ríkisfjármál hafa bein áhrif á verðbólgu og þar með vaxtastig, skuldir, verðlag og kjör heimila og fyrirtækja. Þegar ríkið eykur útgjöld á sama tíma og Seðlabankinn reynir að ná niður verðbólgu með háu vaxtastigi verða skilaboðin óskýr: ein höndin reynir að kæla hagkerfið á meðan hin bætir í eftirspurn og kostnað. Lítið opið hagkerfi þarf enn meiri aga Við erum háð innflutningi langt umfram flestar aðrar þjóðir og þar með berskjaldaðri gagnvart breytingum á gengi krónunnar, erlendri vaxtaþróun og alþjóðlegri verðþróun. Í slíku hagkerfi skiptir trúverðugleiki innlendrar hagstjórnar miklu máli, og hann byggjum við upp t.a.m. með því að fylgja grunngildum laga um opinber fjármál: varúð, festu, stöðugleika og sjálfbærni. Ef hagaðilar skynja að útgjöld ríkisins halda áfram að aukast umfram getu hagkerfisins, þrátt fyrir yfirlýsingar um aðhald, veikjast væntingar um að verðbólga lækki hratt og vel. Þá verður enn erfiðara fyrir Seðlabankann að lækka vexti, og aukinn og ósanngjarn kostnaður lendir á fólki með verðtryggð og óverðtryggð lán, ungu fólki á húsnæðismarkaði, bændum og smærri fyrirtækjum. Ríkið getur ekki staðið utan við baráttuna við verðbólgu, það verður sjálft að spila með allan leikinn. Hallalaus fjárlög krefjast meira en bjartsýni Markmið um hallalaus fjárlög árið 2027 er bæði gott og nauðsynlegt. Vegna óvænts tekjuauka, sem allt bendir til að falli til á árinu 2026 af skattgreiðslum vegna sölu Kerecis til danska fyrirtækisins Coloplast, hefði þó jafnvel verið hægt að ná hallalausum fjárlögum strax á þessu ári. Salan er jákvæð tíðindi og sýnir þann kraft sem getur falist í íslensku hugviti, en hún minnir okkur líka á að einskiptistekjur mega ekki verða til þess að stjórnvöld fresti erfiðum ákvörðunum. Undirliggjandi hallarekstur ríkissjóðs er ekki sjálfbær til lengdar, sérstaklega þegar vaxtagjöldin eru orðin jafn þungur baggi og raun ber vitni. Vaxtakostnaður ríkisins er áætlaður um 143 milljarðar króna á árinu 2027. Um er að ræða fjármagn sem fer ekki í heilbrigðisþjónustu, samgöngur, menntun eða aðra grunnþjónustu. Forgangsröðun er ekki niðurskurður Aðhald þýðir ekki að veikja velferðarkerfið, þvert á móti. Ábyrg ríkisfjármál eru forsenda þess að hægt sé að verja velferð, heilbrigðisþjónustu, menntun, samgöngur og landsbyggðina til framtíðar. Þegar vaxtagjöld hækka fer minna til þjónustutengdra verkefna og fjárfestingar í innviðum. Þegar halli er fjármagnaður með skuldum er reikningurinn sendur til komandi kynslóða. Þess vegna þurfum við e.t.v. að spyrja okkur erfiðra spurninga: Erum við að forgangsraða rétt? Eru verkefni ríkisins of mörg? Hvað getum við einfaldað í rekstri ríkisins? Er hægt að stöðva sjálfvirkan útgjaldavöxt án þess að skerða grunnþjónustu? Ríkið á að ganga á undan með góðu fordæmi Flest heimili hafa þurft að sýna aðhald undanfarin misseri, fyrirtæki hafa þurft að laga sig að háum fjármagnskostnaði og sveitarfélög glíma víða við þrönga stöðu. Í slíkri stöðu verður ríkið líka að taka fullan þátt í verkefninu. Það þarf skýrari forgangsröðun, skilvirkari fjárlagagerð og meiri aga við ákvarðanir um ný útgjöld. Við verðum að gera betur. Staðan í hagkerfinu er ekki nægilega góð og lítið má út af bregða. Lægri verðbólga og lægri vextir verða ekki til með yfirlýsingum einum saman. Aðeins ábyrg þróun ríkisfjármála stuðlar að stöðugleika og efnahagslegri sjálfbærni, og að því markmiði verðum við að stefna saman. Höfundur er bóndi og alþingismaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun