Körfubolti

„Ég er Grind­víkingur en vill bara svo til að ég fór í Kefla­vík“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bragi Guðmundsson ætlar sér stóra hluti með Keflavík á næsta tímabili
Bragi Guðmundsson ætlar sér stóra hluti með Keflavík á næsta tímabili Vísir/ívar

Körfuboltamaðurinn Bragi Guðmundsson segist vera spenntur fyrir næsta kafla sínum á parketinu, með Keflavík og vonandi áfram í stóru hlutverki.

Bragi kemur til Keflavíkur frá Ármanni en hann er uppalinn hjá Grindavík. Hann átti frábært tímabil með Ármanni þar sem hann skoraði að meðaltali 21,9 stig. 

Á þarsíðasta tímabili var hann hjá uppeldisfélagi sínu Grindavík. Ármann endaði síðasta tímabil í tíunda sæti Bónus-deildarinnar og rétt slapp við fallsæti, og má það mikið til skrifast á framgöngu Braga sem er aðeins 22 ára en gæti farið í stórt hlutverk hjá Keflavík næsta vetur.

„Ég vildi fara í lið sem væri að keppa ofar í töflunni og vonandi fá svipað hlutverk,“ segir Bragi sem var í aðallhlutverki hjá Ármanni á síðasta tímabili. Bragi var einn besti íslenski leikmaðurinn í deildinni á síðasta tímabili.

„Ég fékk að þroskast þarna og gera hluti. Ég er ógeðslega þakklátur fyrir Ármann að þeir hafi tekið mig inn,“ segir Bragi sem ræddi við Ármann áður en hann tók ákvörðun um að færa sig yfir til Keflavíkur.

„Ég talaði við mörg lið og ég held að Keflavík sé það besta fyrir mig í stöðunni. Ég talaði við Grindavík en ákvað að fara í Keflavík,“ segir Bragi.

„Mig langar að bæta varnarleikinn minn og ákvarðanatökur, eitthvað sem gæti komið mér á næsta stig vonandi.“

Keflavík mætir Grindavík í fyrsta leik í deild á milli jóla og nýárs.

„Það er ekki mikil hlýja á milli þessara liða. Þannig verður bara gaman að mæta þeim. En ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×