Nokkur orð um samkennd Ari Allansson skrifar 30. júní 2026 20:31 Það sem gerir okkur að manneskjum er samkennd. Hæfileikinn til að sjá heiminn frá sjónarhorni annarrar manneskju. Að skilja að líf annarra hefur sama gildi og okkar eigið. Við lifum á tímum þar sem flæði upplýsinga er meira en nokkru sinni fyrr. Við vitum að það eru stríð í gangi, íþróttamót, kosningar, náttúruhamfarir og örvæntingarfullt fólk er á flótta í rauntíma. En upplýsingar skapa ekki samkennd. Samkennd verður til þegar við hlustum og reynum að skilja áður en við dæmum. Bandaríski rithöfundurinn Bell Hooks skrifaði að ástin væri athöfn, að gera, en ekki bara tilfinning. Hún birtist í því hvernig við komum fram við annað fólk og þeirri ákvörðun að hlúa að lífi annarra. Svolítið eins og að rækta garðinn sinn. Það þarf að vökva til að gulræturnar vaxi. Albert Schweitzer talaði um virðingu fyrir lífinu. Sú hugsun nær út fyrir manninn. Hún nær til dýra, plantna og alls þess lífs sem við deilum jörðinni með. Við stöndum ekki utan náttúrunnar heldur innan hennar. Samkennd er ekki einkamál hvers og eins. Hún hefur menningarlegt gildi. Hún birtist til dæmis vel í því hvernig við ölum upp börnin okkar. Það sem gerir okkur að manneskjum er ekki aðeins greind okkar eða tæknileg geta. Það er hæfileikinn til að sjá okkur sjálf í öðrum og að mæta öllu lífi af virðingu og að geta tekið ábyrgð á því hvernig maður kemur fram við aðra. Höfundur er kvikmyndagerðamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Það sem gerir okkur að manneskjum er samkennd. Hæfileikinn til að sjá heiminn frá sjónarhorni annarrar manneskju. Að skilja að líf annarra hefur sama gildi og okkar eigið. Við lifum á tímum þar sem flæði upplýsinga er meira en nokkru sinni fyrr. Við vitum að það eru stríð í gangi, íþróttamót, kosningar, náttúruhamfarir og örvæntingarfullt fólk er á flótta í rauntíma. En upplýsingar skapa ekki samkennd. Samkennd verður til þegar við hlustum og reynum að skilja áður en við dæmum. Bandaríski rithöfundurinn Bell Hooks skrifaði að ástin væri athöfn, að gera, en ekki bara tilfinning. Hún birtist í því hvernig við komum fram við annað fólk og þeirri ákvörðun að hlúa að lífi annarra. Svolítið eins og að rækta garðinn sinn. Það þarf að vökva til að gulræturnar vaxi. Albert Schweitzer talaði um virðingu fyrir lífinu. Sú hugsun nær út fyrir manninn. Hún nær til dýra, plantna og alls þess lífs sem við deilum jörðinni með. Við stöndum ekki utan náttúrunnar heldur innan hennar. Samkennd er ekki einkamál hvers og eins. Hún hefur menningarlegt gildi. Hún birtist til dæmis vel í því hvernig við ölum upp börnin okkar. Það sem gerir okkur að manneskjum er ekki aðeins greind okkar eða tæknileg geta. Það er hæfileikinn til að sjá okkur sjálf í öðrum og að mæta öllu lífi af virðingu og að geta tekið ábyrgð á því hvernig maður kemur fram við aðra. Höfundur er kvikmyndagerðamaður.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar