Sport

Tveimur refsað og Bergrós lík­legast á leið á heimsleikana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir stóð sig vel á úrslitastundu og það virðist ætla að skila henni alla leið á heimsleikana.
Bergrós Björnsdóttir stóð sig vel á úrslitastundu og það virðist ætla að skila henni alla leið á heimsleikana. Vísir/Einar

Ólán tveggja öflugra keppenda á undanúrslitamóti heimsleikanna virðist ætla að vera lán bestu CrossFit-konu Íslands í dag en Bergrós Björnsdóttir virðist vera að uppskera heimsleikadrauminn sinn.

Í fyrstu leit út fyrir að Bergrós myndi rétt missa af möguleikanum á að keppa á heimsleikunum í CrossFit þrátt fyrir frábæra frammistöðu á undanúrslitamótinu.

Það eru tvær vikur síðan nethluta undanúrslita heimsleikanna lauk en síðan hafa yfirmenn CrossFit-samtakanna verið að yfirfæra myndbönd keppenda.

Var níunda en er nú orðin sjöunda

Það hefur haft sínar afleiðingar. Bergrós endaði í 9. sæti á undanúrslitamótinu en aðeins sjö sæti voru í boði á heimsleikunum.

Þetta var síðasta tækifæri keppenda til að komast á heimsmeistaramótið en Bergrós hafði einnig verið nálægt því að komast beint inn á undanúrslitamótið þar sem hún keppti á staðnum. Þetta mót fór aftur á móti í gegnum netið þar sem keppendur skiluðu upptökum af æfingum sínum og þurftu jafnframt að vera með löggilda dómara á staðnum til að votta árangur sinn.

Bið eftir endanlegri staðfestingu

Nú hefur stöðutaflan verið uppfærð á heimasíðu CrossFit-samtakanna og Bergrós er komin upp í þetta eftirsótta sjöunda sæti. Hún hefur þegar fengið staðfestingu á því að myndbönd af öllum fimm greinum hennar hafa verið staðfest og eru fullgild. Bergrós á nú von á boði á CrossFit-leikana í San Jose ef stigataflan verður staðfest án frekari breytinga.

Þær sem duttu niður listann voru annars vegar franski reynsluboltinn Claudia Gluck og hins vegar Jess Green sem hélt að hún væri komin inn á heimsleikana í fyrsta sinn. 

Jess Green fell úr fimmta sætinu alveg niður í 251. sæti en Claudia Gluck fell úr sjöunda sæti niður í sæti sautján.

Féll úr 5. sæti niður í 251. sæti

Stærsta breytingin varð hjá Jess Green, sem féll úr 5. sæti alla leið niður í 251. sæti á uppfærðri stigatöflu. Skor hennar í greinum 1, 3 og 4 eru nú skráð sem núll, breyting sem virðist tengjast misræmi í dómgæslu, þar sem nafn yfirdómara á vefsíðu leikanna passaði ekki við nafnið sem skrifað var á töfluna í myndbandi hennar.

Niðurstaða Gluck í grein tvö var leiðrétt úr 10. sæti niður í 64. sæti, sem hafði keðjuverkandi áhrif á heildarstigafjölda hennar og færði hana niður í 17. sæti á stigatöflunni.

Nú bíða allir spenntir eftir því hvenær CrossFit læsir stigatöflunni formlega og staðfestir þær sjö konur sem halda á CrossFit-leikana 2026.

Bergós hefur aldrei keppt á heimsleikunum í flokki fullorðinna en náði frábærum árangri í unglingakeppninni, þar á meðal vann hún brons á heimsleikunum í flokki 16 til 17 ára sumarið 2023.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×