Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Agnar Már Másson skrifar 26. júní 2026 12:26 „Nokkrar eignir eru þegar til skoðunar, bæði til skamms tíma og lengri,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. Ríkið auglýsir nú eftir bæði að langtíma- og skammtímahúsnæði undir brottfararstöð. Húsnæðið þarf að geta hýst allt að þrjátíu manns, samkvæmt auglýsingu.
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) sendi í morgun út markaðskönnun þar sem óskað er eftir upplýsingum um húsnæði sem hentar fyrir brottfararstöð, sem samþykkt var á nýafstöðnu þingi. Húsnæðið á að vera á Suðurnesjum og ekki nálægt íbúðarbyggð. Frá þessu er einnig greint í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Þar segir að leitað sé að bæði tímabundnu húsnæði og langtímahúsnæði. Tímabundna húsnæðið þurfi að vera tilbúið fyrir 1. desember þegar lögin taka gildi. Kostur sé ef langtímahúsnæðið verður tilbúið til afhendingar fyrir 30. september á næsta ári. Ekki sé útilokað að tímabundna húsnæðið nýtist síðar sem framtíðarhúsnæði. Með tímabundnu húsnæði fáist ákveðin reynsla af því hvers konar húsnæði nýtist best og hversu mikil þörfin verður. Húsið eigi að vera í kringum 750 til 1.200 fermetrar. Í tilkynningunni segir að húsnæðið þurfi að geta hýst allt að þrjátíu og vera með aðstöðu fyrir starfsfólk og gott, afgirt útisvæði eða möguleika á að útbúa slíkt svæði. Gert sé ráð fyrir fimmtán til þrjátíu svefnherbergjum með snyrtingu og sturtu eða aðgengi að sameiginlegum snyrtingum og sturtum, þvottahúsi og matsal. „Nokkrar eignir eru þegar til skoðunar, bæði til skamms tíma og lengri,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Tekið er fram að fjölskyldur verði vistaðar á öðrum stað og stendur leit yfir að hentugu húsnæði.
Brottfararstöð fyrir útlendinga Innflytjendamál Flóttafólk á Íslandi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira