Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar 29. júní 2026 07:03 Barnahús á Íslandi hefur í tæplega þrjátíu ár verið fyrirmynd sambærilegrar þjónustu víða um heim. Þótt hugmyndafræðin eigi rætur að rekja til Child Advocacy Center í Huntsville í Alabama var það Ísland sem þróaði áfram þverfaglegt samstarf milli stofnana og kerfa, þannig að öll börn á Íslandi gætu fengið sömu þjónustu, óháð búsetu eða félagslegum aðstæðum. Barnahúsalíkanið hefur á síðustu áratugum breiðst út til fleiri en þrjátíu landa í Evrópu og heldur áfram að þróast víða um heim. Þekkingin og reynslan sem byggst hefur upp hér á landi hefur lagt mikilvægan grunn að þeirri þróun. Það sem Barnahús á Íslandi hefur umfram margar sambærilegar stofnanir erlendis er öflugt samstarf við réttarkerfið og barnaverndarkerfið, auk sterkrar langtímamiðaðrar áfallameðferðar fyrir börn. Í Barnahúsi er þjónusta við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi sameinuð undir einu þaki. Þar fara fram skýrslutökur fyrir dómi, könnunarviðtöl fyrir barnaverndarþjónustur, áfallameðferð fyrir börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi, stuðnings- og fræðsluviðtöl fyrir forsjáraðila og fjölskyldumeðferð í málum þar sem heimilisofbeldi er til staðar. Barnahús tekur einnig við tilvísunum í svokallaða SÓK-meðferð fyrir börn sem sýna skaðlega kynhegðun. Barnahús er barnvænt umhverfi þar sem tekið er utan um barnið og fjölskyldu þess með samfelldum og faglegum hætti. Í Barnahúsi geta börn einnig fengið læknisskoðun þegar grunur leikur á kynferðisofbeldi. Sérhæft teymi frá Landspítala háskólasjúkrahúsi annast þær skoðanir. Í teyminu eru kvensjúkdómalæknir, barnalæknir og barnahjúkrunarfræðingur. Ef um bráðalæknisskoðun er að ræða fara börn á neyðarmóttöku Landspítalans þar sem þeim er mætt með barnvænni nálgun. Með tilkomu nýrrar ofbeldismóttöku barna skapast mikilvægt tækifæri til að efla enn frekar þjónustu við börn sem verða fyrir ofbeldi. Reynslan af Barnahúsi á Íslandi og í öðrum löndum sýnir að þegar barnavernd, heilbrigðisþjónusta og réttarkerfið vinna náið saman fá börn og fjölskyldur þeirra markvissari og samfelldari þjónustu. Nú er lag að nýta þessa þróun til að styrkja samstarf kerfanna enn frekar. Samhliða hefur umfang starfseminnar aukist. Á fyrstu fimm mánuðum ársins 2026 veitti Barnahús þjónustu í 245 málum barna og fjölskyldna þeirra. Umfangið undirstrikar mikilvægi þjónustunnar og þörfina á að tryggja henni viðeigandi umgjörð til framtíðar. Núverandi húsnæði er orðið of lítið fyrir starfsemina og takmarkað rými setur henni skorður, meðal annars við eflingu fagteymisins og áframhaldandi þróun þjónustunnar. Nýleg húsnæðisgreining sýnir að Barnahús þarf verulega aukið rými til að geta mætt þörfum barna og fjölskyldna til framtíðar. Mikilvægt er að vinna áfram að farsælli lausn á húsnæðismálum Barnahúss í góðu samstarfi við stjórnvöld og aðra ábyrgðaraðila. Þegar börn hafa orðið fyrir ofbeldi skiptir tíminn máli. Skjót viðbrögð og aðgengi að samfelldri þjónustu geta skipt sköpum fyrir líðan þeirra og bata. Þess vegna er mikilvægt að skapa Barnahúsi þau skilyrði sem þarf til að þróa þjónustuna áfram og mæta þörfum barna og fjölskyldna. Nýlega tók ég við starfi forstöðumanns Barnahúss. Markmið mitt er að byggja áfram á þeim sterka faglega grunni sem hér hefur verið lagður og efla þjónustuna í góðu samstarfi við þau kerfi sem koma að málefnum barna. Börn sem verða fyrir ofbeldi eiga rétt á samfelldri, faglegri og barnvænni þjónustu. Sameiginlegt verkefni okkar er að tryggja að hvert barn fái rétta þjónustu, á réttum tíma og í umhverfi sem tekur mið af þörfum þess. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar