Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar 25. júní 2026 12:02 Í vikunni fékk ég markpóst frá Íslandsbanka og slíkt væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, því rusl og drasl berst reglulega í innhólfið mitt. Þar sem þetta er nú bankinn minn og þetta leit í fyrstu ekki út fyrir að vera frá einhverjum að fiska eftir leyninúmerum mínum, ákvað ég að lesa textann. Því lengra niður sem ég las, því ákveðnari varð ég í því að þetta hlyti að vera einhver sem vildi komast yfir gögnin mín, allt þar til ég las að mér væri boðið í kaffi. Satt að segja ætlaði ég ekki að trúa því að þessu væri beint til mín og ég ætla rétt að vona að móðir mín, rúmlega áttræð, hafi ekki lesið þetta, því henni myndi svelgjast á kaffinu á milli þess sem hún skrollaði í símanum sínum. Íslandsbanki ætti kannski að bjóða móður minni í heimsókn og kaffi svo þeir geti lært hvernig á að tala við fólk. Hvernig á að búa til markaðsefni sem talar ekki niður til fólks og hvernig á að koma fram við aldraða, enda móðir mín með yfir 50 ára reynslu í textagerð, auglýsinga- og markaðsmálum. Hún gæti mjög líklega kennt því unga fólki, sem finnst þessi texti sniðugur, ýmislegt, m.a. um það hvernig á að nota tölvur til að skrifa texta. Sem betur fer er hugbúnaðarverkfræðingurinn hann faðir minn ekki viðskiptavinur Íslandsbanka. Hann hefði getað fengið hjartaáfall af reiði yfir því hvernig þetta bréf var orðað. Mín kynslóð hefur alist upp við töluverðar breytingar, allt frá því að ég sá gataspjald notað í tölvu og fram til þessa dags, þar sem við notum símann meira en nokkurt annað tæki. Nú bætist meira að segja gervigreindin ofan á allt. Mér var því hugsað til þess að þessi texti hlyti að hafa verið gerður af gervigreind, því ekki gat hann verið gerður af mikilli greind. Annað kom þó á daginn, því ég fékk gervigreindina til að lesa yfir textann og segja mér hvað henni fyndist um innihaldið. Næst þegar Íslandsbanki sendir frá sér efni til eldri borgara sem komnir eru yfir sextugt, ætla ég rétt að vona að starfsmenn bankans muni að þær kynslóðir sem eru nú yfir sextugt eru sennilega mun tæknilega færari en flestir starfsmenn bankans, enda sú tækni sem starfsmennirnir nota byggð upp af þessum kynslóðum. Best væri ef Íslandsbanki og starfsmenn hans myndu muna að þó þú verðir sextugur þá dettur heilinn ekki úr sambandi og þú getur enn leyst ýmis verkefni, jafnvel svo flókin að nota illa hannaðan heimabanka. Það er nefnilega ekkert að heilabúi flestra þeirra sem eru komnir yfir sextugt, en ef svo er, að einhverjum þyki heimabankinn í símanum flókinn, þá er vandamálið hönnun hans, ekki heili fólks. Sem notandi heimabankans síðan hann komst á laggirnar veit ég að nýjasta uppfærslan er langt því frá að vera nógu góð eða notendavæn. Til Íslandsbanka sendi ég því þetta gamla góða heilræði: „Líttu þér nær.“ Þegar ég lét gervigreindina lesa yfir póstinn frá Íslandsbanka gaf ég þessa einföldu skipun til að sjá hvaða þroska fram yfir starfsmenn Íslandsbanka gervigreindin hefur. “Getur þú greint þennan texta og sagt mér hvað þér finnst um hann” Svar gerfigreindarinnar var ansi gott. Starfsmenn bankans hefðu kanski átt að ráðfæra sig við hana. "Já. Textinn er í sjálfu sér kurteis, skýr og tiltölulega vel skrifaður, en hann hefur líka ákveðinn tón sem getur lesist svolítið vandræðalega — sérstaklega ef hann er sendur á fólk sem ekki hefur beðið um tækniaðstoð. Mér finnst aðalatriðið vera þetta: textinn gerir ráð fyrir að viðtakandinn þurfi hjálp við app, netbanka, innskráningu, millifærslur, greiðslu reikninga og kortayfirlit. Það er ekkert rangt við að bjóða slíka aðstoð, en orðalagið getur auðveldlega hljómað eins og verið sé að tala niður til viðtakandans, sérstaklega með upphafinu: „Tækninni fleygir fram og stundum er gott að fá smá aðstoð.“ Þetta er mjúkt orðað, en undirtextinn er: „Þú gætir verið orðinn eftir á í tækninni.“ Ef þetta er sent til eldri viðskiptavina út frá aldri, þá getur það virkað aldursmiðað og jafnvel örlítið niðurlægjandi, þó það sé örugglega ekki ætlunin. Það sem virkar vel er að boðið er fram á vingjarnlegan hátt: kaffi, vöfflur, spjall, ákveðinn staður og tími. Þetta gerir viðburðinn mannlegri og minna eins og þurrt bankanámskeið. „Tæknikaffi“ er líka ágætt heiti — hlýlegt og ekki ógnandi. Það sem virkar síður er að textinn talar mikið um grunnatriði: uppsetningu, innskráningu, millifærslur, greiðslu reikninga. Fyrir tæknilæst fólk getur þetta lesist eins og bankinn haldi að maður kunni ekki einföldustu hluti. Betra hefði verið að orða þetta sem almennt boð um að nýta stafræna þjónustu betur, frekar en að leggja áherslu á aðstoð við byrjendaatriði. Til dæmis hefði mátt segja: „Við förum yfir helstu möguleika í Íslandsbankaappinu og netbankanum, svörum spurningum og sýnum nytsamlegar leiðir til að fá betri yfirsýn og spara tíma í daglegum bankaviðskiptum.“ Það er virðulegra, því það gerir ekki ráð fyrir vanþekkingu. Það býður upp á aukna færni. Ég myndi því segja: góður tilgangur, ágæt uppbygging, en tónninn er aðeins of „við ætlum að hjálpa þér að skilja tæknina“. Ef þú fékkst þetta persónulega, skil ég mjög vel ef þér finnst þetta hálf fyndið eða pirrandi — sérstaklega þar sem þú ert vanur að fikta í vefjum, forritum, gervigreind, myndvinnslu og tæknikerfum. Þá hittir boðskapurinn svolítið skakkt." Höfundur er 60+ en ekki 6 ára. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun