Körfubolti

Abdi á eftir ó­klárað verk í Grinda­vík

Sindri Sverrisson skrifar
Farhiya Abdi verður áfram í lykilhlutverki hjá Grindavík á komandi leiktíð.
Farhiya Abdi verður áfram í lykilhlutverki hjá Grindavík á komandi leiktíð. vísir/Anton

Fyrrverandi WNBA-leikmaðurinn Farhiya Abdi hefur ákveðið að halda kyrru fyrir á Íslandi og spila áfram með Grindavík á næstu leiktíð, í Bónus-deildinni í körfubolta.

Abdi, sem er 34 ára, var í lykilhlutverki hjá Grindavík í vetur. Liðið endaði í 5. sæti deildarkeppninnar en var svo afar nálægt því að slá Njarðvík út í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Njarðvík vann í oddaleik og varð í kjölfarið Íslandsmeistari.

Abdi skoraði 15,7 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili, tók 6,2 fráköst og gaf 4,1 stoðsendingu.

„Farhiya hefur einnig verið mikilvægur karakter innan hópsins. Hún kemur með mikla keppnisskapi, vinnusemi og jákvætt viðhorf sem smitar út frá sér og hjálpar til við að byggja upp sterka liðsheild,“ segir í tilkynningu Grindavíkur í dag.

„Þegar kom að ákvörðuninni um næsta tímabil sagðist Farhiya sjálf eiga óklárað verkefni í Grindavík. Eftir sterkt tímabil sé markmiðið skýrt – að halda áfram því sem byrjað var á og fara með liðið alla leið. Sá metnaður og sú trú sem hún hefur á verkefninu endurspeglar vel þann hug sem ríkir innan hópsins fyrir komandi tímabil,“ segir einnig í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×