Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson og Bjarki Ómarsson skrifa 24. júní 2026 10:31 Á síðustu misserum hafa óvenju mörg mál vegna uppsagna í fæðingarorlofi ratað inn á borð Verkfræðingafélags Íslands. Þótt atvik og aðstæður séu mismunandi frá einu máli til annars vekur þessi þróun áhyggjur. Réttur foreldra til fæðingarorlofs nýtur ríkrar verndar samkvæmt lögum. Vinnuveitendum er óheimilt að segja starfsmanni upp störfum vegna þess að hann hefur tekið eða hyggst taka fæðingarorlof. Þá á starfsmaður rétt á að snúa aftur í fyrra starf að loknu fæðingarorlofi. Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, er uppsögn starfsmanns í fæðingarorlofi aðeins heimil ef gildar ástæður liggja að baki. Skriflegur rökstuðningur skal fylgja uppsögninni og komi upp ágreiningur ber vinnuveitanda að sýna fram á að gildar ástæður hafi legið að baki ákvörðuninni, sem hafi ekkert með töku fæðingarorlofs að gera. Starfsfólk nýtur verndar samkvæmt lögunum jafnvel áður en barnið er komið í heiminn. Samkvæmt dómaframkvæmd hefst verndartíminn við að starfsmaður hefur tilkynnt yfirmanni um væntanlegan barnsburð, jafnvel þótt formlegri umsókn til Fæðingarorlofssjóðs hafi enn ekki verið skilað. Þá nýtur starfsfólk réttarverndar allt þar til það snýr aftur úr fæðingarorlofi. Reynslan sýnir að ekki eru allir vinnuveitendur meðvitaðir um þetta. Í sumum tilvikum virðist skorta þekkingu á lagaumhverfinu en í öðrum virðist sem vinnuveitendur telji að starfsmenn muni ekki leggja í að verja rétt sinn á viðkvæmum tíma í lífi sínu. Mikilvæg réttindabót fyrir fjölskyldur Með lögum um fæðingar- og foreldraorlof voru stigin mikilvæg skref til að styrkja rétt foreldra og stuðla að jafnari möguleikum kynjanna á vinnumarkaði. Markmið laganna er meðal annars að auðvelda foreldrum að samræma fjölskyldu- og atvinnuþátttöku og tryggja börnum samvistir við báða foreldra á fyrstu mánuðum ævinnar. Þegar starfsmanni er sagt upp störfum á meðgöngu eða í fæðingarorlofi hefur það því ekki aðeins áhrif á viðkomandi einstakling heldur einnig á fjölskyldu hans. Á þeim tíma sem foreldrar eiga að geta einbeitt sér að nýju hlutverki sínu geta skapast áhyggjur af atvinnuöryggi og afkomu, sem er einmitt í andstöðu við tilgang laganna. Erfið staða þrátt fyrir vernd laganna Þótt lagaverndin sé sterk getur staða starfsmanns sem fær uppsagnarbréf í fæðingarorlofi verið erfið. Nýbakaðir foreldrar standa frammi fyrir miklum breytingum í einkalífi og flestir treysta á að geta snúið aftur til starfa að orlofi loknu. Að þurfa að takast á við ágreining við vinnuveitanda eða leita réttar síns getur reynst bæði fjárhagslega og andlega íþyngjandi. Til að auðvelda sporin stendur fólki til boða að skjóta ákvörðunum um uppsagnir við þessar aðstæður til kærunefndar jafnréttismála, en það er alla jafnan einfaldari málsmeðferð heldur en fyrir almennum dómstólum. Úrskurðir kærunefndar eru bindandi fyrir málsaðila nema þeim sé skotið til dómstóla. Það er mikilvægt að launþegar átti sig á því að uppsögn í fæðingarorlofi er ekki sjálfkrafa lögmæt þótt hún komi frá vinnuveitanda. Hvert mál þarf að skoða sérstaklega og sjálfsagt er að leita ráðgjafar áður en ákvörðun er tekin um næstu skref. Verkfræðingafélag Íslands hvetur launþega sem fá uppsögn á meðan þeir eru í fæðingarorlofi, eða telja að réttindi sín hafi verið skert vegna töku fæðingarorlofs, til að leita tafarlaust til síns stéttarfélags. Mikilvægt er að fá stöðuna metna sem fyrst enda geta réttindi glatast ef ekki er brugðist við innan tiltekinna tímamarka. Fæðingarorlof á að vera tími sem foreldrar verja með börnum sínum. Rétturinn til að taka slíkt orlof án þess að óttast afleiðingarnar er meðal þeirra grundvallarréttinda sem íslenskur vinnumarkaður byggir á og mikilvægt að vinnuveitendur virði. Bjarki Ómarsson, formaður Kjaradeildar VFÍ.Árni B. Björnsson, framkvæmdastjóri VFÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fæðingarorlof Vinnumarkaður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar