Norðmenn undirbúa sig fyrir blautan leik í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 16:02 Erling Haaland fagnar hér fyrsta marki sínu á heimsmeistaramótinu sem var jafnframt það fyrsta sem Norðmenn skora á HM í 28 ár. Getty/Buda Mendes Miklar líkur eru á ansi blautu kvöldi í New York í kvöld þegar Noregur mætir Senegal í öðrum leik þjóðanna á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Norski landsliðsþjálfarinn Ståle Solbakken segir að liðið sé að undirbúa sig fyrir veðurbreytingar. Á æfingu sunnudagsins í Greensboro var völlurinn vel vökvaður. „Þetta er orðið að hreinni veðurfræði, en við vökvum í dag,“ sagði Solbakken við norska ríkisútvarpið. Noregur hefur notað mikinn tíma í að venjast þurru grasi, en gegn Senegal getur liðið búist við hinu gagnstæða. „Þetta er auðvitað eins fyrir bæði lið, en völlurinn er grjótharður. Grasið er mjög stutt og með veðurspánni sem er í gildi held ég að boltinn muni ganga gríðarlega hratt,“ sagði Solbakken. „Við verðum að reyna að takast á við það eins vel og við getum og ná stjórn á því eins fljótt og mögulegt er. Við fáum jú ekki að æfa þar fyrir fram, svo við verðum að ná tökum á því fljótt,“ sagði Solbakken. Veðurfræðingurinn sem NRK talaði við segir eftirfarandi um veðurspána fyrir East Rutherford, New Jersey. „Á fyrstu klukkutímunum fyrir leik verða skúrir á leið inn á svæðið. Þær munu haldast þar í marga klukkutíma. Í leiknum er búist við skúrum og hættu á þrumuveðri. Það rignir með köflum, en það getur rignt mikið í einu og leikurinn gæti orðið fyrir mikilli rigningu, segir veðurfræðingurinn. Leikurinn hefst klukkan 20:00 að staðartíma eða á miðnætti á íslenskum tíma.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Fleiri fréttir Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Nýbúin að vera valin best á Íslandi og skoraði tvö mörk í Svíþjóð Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Emelía skoraði tvennu í mikilvægum sigri Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“