Innlent

Loka Sæ­braut til austurs við Hörpu í kvöld

Lovísa Arnardóttir skrifar
Framkvæmdir hefjast klukkan 20.
Framkvæmdir hefjast klukkan 20. Vísir/Vilhelm

Í dag, mánudaginn 22. júní frá klukkan 20:00 til klukkan 06:00 að morgni þriðjudagsins 23. júní, verða framkvæmdir á um 560 metra kafla á Sæbraut.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veginum verður lokað til austurs við gatnamót Sæbrautar og Skúlagötu/Hörpu, að gatnamótum við Snorrabraut. Hjáleið verður merkt á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×