Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar 21. júní 2026 12:02 Mannmiðjuvillan Þessi ríka tilhneiging mannsins til að líta svo á að hann eigi tilkall til auðlinda jarðar og eðlislægt yfirráð yfir öðrum lifandi verum og plánetunni sjálfri. Hún einkennist af djúpum misskilningi mannsins um stöðu sína í vistkerfinu. Það er ekki svo langt síðan að við héldum við að sólin snerist í kringum jörðina og að við værum miðja alheimsins.Maðurinn vill gjarnan telja sér trú um að náttúran þurfi stöðugt á mannlegri stjórn að halda. Að við getum „lagað” náttúruna með því að drepa fleiri dýr. En við höfum oftar en ekki valdið meiri skaða með því. Hvernig væri að við myndum læra af mistökum okkar og taka ábyrgð á afleiðingum mannlegra umsvifa áður en við tökum upp byssuna, hlöðum sprengjuskutulinn eða stillum upp gildrunni?Yellowstone úlfarnirÁ fyrstu áratugum 20. aldar var úlfum Yellowstone þjóðgarðsins að mestu leyti útrýmt. Þeir voru úthrópaðir sem skaðræðisdýr enda drápu þeir búfé og kepptust um villt dýr sem maðurinn vildi sjálfur nýta. Bandaríska landbúnaðarráðuneytið greiddi veiðimönnum þóknun fyrir hvern veiddan úlf. Veiðimennirnir voru að fjarlægja óæskileg dýr og betrumbæta náttúruna. Ásamt skotveiði var eitri og gildrum beitt. Þessi kerfisbundna útrýming bar árangur og úlfurinn hvarf úr garðinum. Fyrir vikið fjölgaði hjartardýrum mikið sem aftur á mót jók beitarþrýsting í þjóðgarðinum umtalsvert. Afleiðingarnar voru þær að fuglum, froskum og skordýrum tók að fækka og vistkerfi vatna röskuðust. Það var ekki fyrr en að við höfðum útrýmt óargadýrinu mikla að við áttuðum okkur á því að úlfurinn í Yellowstone þjóðgarðinum var lykiltegund sem gegndi þar mikilvægu hlutverki í jafnvægi vistkerfisins.Villt spendýr á Íslandi Nýleg gögn vekja áhyggjur um núverandi stefnu stjórnvalda gagnvart íslenska refnum. Frá árinu 2011 hefur refastofninn dregist saman um 40%. Á sama tíma eru árlega felld um 7.000 dýr og stofnstærðin nú metin aðeins um 4.700 dýr. Íslenski refurinn er eina upprunalega landspendýr Íslands, hefur lifað hér frá lokum ísaldar og er órjúfanlegur hluti af náttúru landsins. Á sama tíma er hann skotmark umfangsmikilla veiða sem eru fjármagnaðar af hinu opinbera. Útgjöld vegna refaveiða nema milljörðum króna frá friðun refsins árið 1994. Tilgangur þessara veiða er óljós. Tilkynningar um tjón af völdum refs eru afar fáar og engu samræmi við umfang veiða. Grenjaveiðar eru enn stundaðar. Þar eru refir eru felldir við gren sín og setið er fyrir yrðlingunum sem eru síðan drepnir hver af öðrum. Ísland virðist vera eitt fárra landa þar sem þessi veiðiaðferð er enn stunduð enda afar umdeild vegna dýravelferðarsjónarmiða. Þar að auki eru refaveiðar markaðssettar sem spennandi upplifun fyrir erlenda veiðimenn. Það þykir eftirsóknarvert að veiða svo fágæt dýr. Á níunda ártugnum var Hringormanefndin sett á laggirnar þar sem veitt voru verðlaun fyrir dráp á landsel í þeim tilgangi að draga úr tíðni hringormasýkinga í nytjafiski. Þetta leiddi til mikillar fækkunnar í stofninum, en hann hefur minnkað um 70% frá árinu 1980. Engar vísbendingar eru um að þessi aðgerð stjórnvalda hafi dregið úr útbreiðslu hringorms í fiskistofnum en stofn landsela hefur orðið fyrir langvarandi áhrifum og er nú á válista sem tegund í útrýmingarhættu.Síðan eru það hvalirnir sem „éta allan fiskinn frá okkur”. Kannski er það út af þessum útbreidda misskilningi sem við leyfum litlum karli ennþá að sprengja ljúfa risa í tætlur. Bátar hans sigla í dag í leit að nýjum fórnarlömbum til að hægdrepa með veiðiaðferðum frá 19. öld. Hvalir, þessu stórkostlegu dýr sem hafa lifað í jafnvægi við umhverfi sitt í hundruðir þúsundir ára. Það eru nefnilega ekki hvalir sem að stunda ofveiði, raska jafnvægi sjávarlífs með togveiðum, valda plastmengun og losa kolefni í ofgnótt með tilheyrandi áhrifum á sýru- og hitastig sjávar. Það gerum við. Þvert á móti eru það hvalirnir sem stuðla að heilbrigði hafsins, styðja lífkeðjuna og binda kolefni í tonnatali.Villt spendýr telja nú aðeins 4% af heildarlífmassa spendýra á jörðinni. Restin eru við og þau dýr sem við höfum hneppt í ánauð og ákveðið að nýta okkur. Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af þessum dýrmætu fjórum prósentum sem okkur ber að vernda.Meðferð þeirra hér á landi er til skammar. Það er tímabært að líta upp, forða þeim frá mannmiðjuvillunni og gæta þeirra. Það er okkar raunverulega hlutverk. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dýr Dýraheilbrigði Rósa Líf Darradóttir Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Lok ríkisábyrgðar marka kaflaskil Rafnar Lárusson Skoðun Skoðun Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Síbylja í sorginni Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Hækkun hjá Heilsu hf. Nota bene! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Lok ríkisábyrgðar marka kaflaskil Rafnar Lárusson skrifar Skoðun Þjóðin kom saman og byggði Kvennaathvarf – Takk! Esther Hallsdóttir skrifar Skoðun Fangar eigin hugsana, tilfinninga og skoðana Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Þegar sorgin fær reikning frá hinu opinbera Ragnheiður Helga Skúladóttir skrifar Skoðun Virði menntunar og staða á húsnæðismarkaði Kolbrún Halldórsdóttir,Helgi Gunnarsson,Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðardóttir,Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf Ásta María H Jensen skrifar Skoðun Sjálfbær rekstur eða niðurgreiddur – hvort er lúxus, Daði? Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir skrifar Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson skrifar Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem skrifar Sjá meira
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun Virði menntunar og staða á húsnæðismarkaði Kolbrún Halldórsdóttir,Helgi Gunnarsson,Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðardóttir,Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun